Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 71

Náttúrufræðingurinn - 2004, Page 71
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags inga á stærð Bárðardalshrauns, sem sýndir eru í 1. töflu, má ætla að Kinnarhraun sé vart minna en 300 km2. Ef miðað er við 16 m meðal- þykkt, en það er þykktin í bor- holunni SS-02, er rúmtakið 4,8 kml Kinnarhraun er eldra en Utbruna- hraun og Bárðardalshraun, en Ut- brunahraun er talið um 10.300 ára, eins og vikið verður að hér á eftir. Kinnarhraun er þar með í hópi elstu sprunguhrauna sem þekkt eru á Islandi og gæti verið um 10.500 ára (raunaldur). Útbrunahraun Útbrunahraun er víðáttumikið helluhraun sem þekur land austan Suðurár og nær allt að Sellandafjalli og tekur yfir mikinn hluta þess flæmis sem á kortum er kallað Út- bruni. Til austurs hefur það flætt ofan í Bárðardal sunnan Svartár- vatns, svipaða leið og Kinnarhraun- ið áður. Svartárvatn varð til við þennan atburð, a.m.k. í sinni nú- verandi mynd, en merki sjást um að þama hafi einnig um tíma staðið uppi lón í ísaldarlok. Hraunið náði að Hrafnabjörgum vestan Skjálf- andafljóts og hefur þá að líkindum stíflað fljótið (sjá kaflana um Bárðar- dalshraun og Hafursstaðavatn) en önnur álma hraunsins hefur flætt niður með Svartá austan við Hátungur og sést nyrst á yfirborði við ósa Suðurár, á svipuðum slóðum og Kinnarhraunið. Hraunið er í báðum borholunum SS-01 og SS-02, 7 m og 10 m þykkt í hvorri holu (3. mynd). Hraunbreiðan suður af Svartárvatni er afar flöt og jafnframt lítið sprungin. Yfirborði hennar hallar um 1° til norðvesturs. Hraun- reipi einkenna allt yfirborð þess, kargi er hvergi sjáanlegur. Víða hefur það brotnað upp í stórar hellur sem reisa sig upp yfir flatt hraunið í kring. Ein álma hraunsins hefur streymt niður með Sellandafjalli að vestan og þar kemur Kráká upp undan því. Útbrunahraun er með smáum plagíóklasdílum. Dílaþéttleiki er mismunandi frá einum stað til annars og sums staðar er það díla- 2. mynd. Klettur úr Kinnarhrauni við heimreiðina að Vaði skammt inn afneðstu brúnni á Skjálfandafljóti, í meira en 100 km fjarlægðfrá ætluðum gosstöðvum. -An outcrop of the Kinnarhraun lava in the outer Bárðardalur region, at over 100 km from its suggested craters. Ljósm./Photo: Arni Hjartarson. laust með öllu, t.d. víða í sundinu austan við Hátungur. Dílótt og dílalaust berg finnst jafnvel í sömu hrauntungu. Hugsanlega er þó um fleira en eitt hraun að ræða innan þessa flæmis en ekki tókst að finna neina samfellda jaðra né skil í hrauninu sem réttlæta skiptingu þess. Jarðvegs- og gjóskulagaat- huganir benda til svipaðs aldurs á allri hraunbreiðunni. Uppruni Útbrunahrauns er óþekktur. Næsta Ijóst er þó að það er komið úr einhverri af dyngjum Ódáðahrauns en hver þeirra það er, er enn ekki vitað. Aldur og stærð I jarðvegssniðum sem mæld hafa verið víðsvegar um hraunið sjást gjóskulög Heklu, H3 og H4, víða. Þykkt jarðvegs undir H4 bendir til að hraunið sé yfir 9000 ára. Auk þess sést eldfjallaaska, sem hugsan- lega er svokölluð Saksunarvatns- gjóska, víða ofan á því bæði sem upprunaleg loftborin gjóska og til- flutt vindblásin og vatnsborin gjóska. Þetta gjóskulag er kennt við stöðuvatn í Færeyjum en þar var það fyrst skilgreint og aldurs- greint.5 Það finnst víða um Fær- SS-01 kargi Báröardalshraun Útbrunahraun Kinnarhraun gjóska jökulurö SS-02 Kinnarhraun gamalt basalt 3. mynd. Jarðlagasnið úr kjarnaholunum SS-01 og SS-02 í hraununum við Suðurá. Holurnar voru boraðar samhliða rann- sóknum sem gerðar voru 1963. Gert eftir frummynd Hauks Tómassonar frá 1967f - Sections from two drillholes penetrating the lavas. 157

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.