Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 5
fuglanna. Mest ber á færeyskum
fuglum, svo sem langvíum og lundum,
en einnig koma þangað fuglar frá
íslandi og Noregi. íslenskar álkur halda
sig eitthvað á þessu hafsvæði, svo og
súlur. Talið er að hávellur frá íslandi
hafi þarna vetursetu en flórgoði og
himbrimi eru viðkvæmastir af þeim
fuglunt okkar sem gætu dvalist á
þessum slóðum. íslenska flórgoða-
stofninum hefur stöðugt hrakað, hvað
sem veldur, og himbrimar eru fáir.
Árið 1979, sama mánaðardag og
Braer fórst, varð mikið olíuslys við
Sullom Voe á Hjaltlandi þar sem
tugþúsundir l'ugla fórust, þar af hátt á
annað hundrað himbrima. Var talið
að þessir fuglar væru íslenskir en hafi
það verið rétt var um að ræða mikla
blóðtöku l'yrir íslenska stofninn, sem
varla telur fleiri en eitt þúsund fugla.
BRAERSTRANDAR
Olíuflutningaskipið Braer strandaði
nærri syðsta odda Hjaltlands er það
var á leið frá Noregi til Kanada með
olíufarm úr Norðursjó. Talið er að
um 85.000 tonn af óhreinsaðri jarð-
olíu hafi verið um borð í skipinu.
Þetta er tvöfalt rneira magn en var um
borð í olíuflutningaskipinu Exxon
Valdez þegar það strandaði við
Alaska 1989 og svipað magn og var í
olíuflutningaskipinu Aegian Sea sem
brotnaði í spón við La Coruna á
Spánarströndum í desember 1992.
Olíuskipið Braer var sntíðað árið
1975, skráð í Líberíu en útgerðin er
bandarísk.
Þegar Braer var statt um 10 sjómílur
suður af syðsta odda Hjaltlands
stöðvuðust báðar aðalvélar skipsins.
Þá var sunnan hvassviðri á þessum
slóðum og afar slæmt veður. Áhöfn-
inni, 34 mönnum, var bjargað í þyrlu
en ekki tókst að bjarga skipinu, sem
fimm klukkustundum síðar rak upp í
Garthnesskletta við Quendaleflóa syðst
á Hjaltlandi.
Sakir illviðra, og oft beinlínis
fárviðris, var sáralítið unnt að gera til
að koma í veg fyrir að olía bærist í
sjóinn og upp á strendur. Svo fór á
endanum, þann 12. janúar, að skipið
nánast brotnaði í fjóra hluta í veðri
sem fylgdi dýpstu lægð sem mælst
hefur á þessurn slóðum. Ekki tókst að
bjarga neinu af olíunni úr tönkum
skipsins (3. mynd).
Olía
Kolvetni (e. hydrocarbons) kallast
þau efni sem eingöngu innihalda kolefni
(C) og vetni (H). Metangas CH4 er
einfaldasta kolvetnið og er það loft-
kennt (gas) við venjuleg skilyrði. Eftir
því sem sameindirnar stækka (fleiri
kolefnis- og vetnisatóm) hækkar suðu-
markið. Kolvetni sem innihalda 1-5 C-
atóm í sameind eru gastegundir. Ef
6-20 C-atóm eru í sameind rnynda þau
olíur en lengri kolvetniskeðjur mynda
tjöru og bik.
Olía í sjó
Olía er blanda kolvetna og er blandan
því flóknari sem olían er minna
hreinsuð. Olía er nánast óleysanleg í
vatni. Hún leysist ekki upp þegar hún
er hrist kröftuglega saman við valn
heldur myndar hún sviflausn. Þegar
kyrrð kemst á skilja vökvarnir sig aftur.
Margir þættir stjórna því hvernig olía
berst um í vatni. Má þar nel'na gerð
olíunnar, sjávarföll og strauma, auk
veðurlags, sem ákvarðar að hve miklu
leyti olían blandast lóðrétt í sjónum.
Þung jarðolía getur myndað yfirborðs-
þekju sent rekur að mestu undan veðri
og vindunt, en dýpri straumar hafa lítil
áhrif á rekið. Þess konar olía getur
þakið strendur og haft veruleg áhrif á
fuglalíf og sjávarspendýr á strand-
svæðum. Olían sem Braer flutti var frá
115