Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 34
árið 1865 og þegar á 19. öldina leið
var hún orðin algeng í kaupstöðum og
í grennd við þá um allt landið.
Getur verið að brúnrotta hafi hér-
lendis, eins og á sumum öðrum
stöðum, útrýmt svartrottu? Það tel ég
óhugsandi. Mér virðist tiltæk vitneskja
benda til þess að svartrotta hafi aldrei
þrifist hér á landi til langframa.
Svartrottan er algeng í skipum, enda
stundum kölluð ship rat á ensku. Hún
var orðin útbreidd um Norðurlönd á
14. öld eða fyrr og hlýtur því að hafa
borist margoft tiI hafna í öllum
landshlutum upp frá því. Ef svartrotta
hefði getað þrifist hér mætti því ætla
að nóg hefði verið af henni fyrir daga
brúnrottu í Evrópu. En svo var ekki. í
skýrslu frá 17. öld (Resenius og Þórður
Þorláksson; Bjarni Sæmundsson vitnar
í þá) er frá því greint að hérlendis hafi
þá engar rottur verið. Og rotturnar
undir Jökli á Snæfellsnesi voru að mati
Eggerts Ólafssonar þær einu á íslandi.
Samkvæmt þessu hefur svartrotta
borist hingað hvað eftir annað á
skipum - og berst enn - en deyr
ævinlega út eftir skamman tíma. Bjarni
Thorarensen lýsir þessu mun betur en
mér er auðið í erindi sem kveðið mun
í upphafi 19. aldar:
Þó vellyst í skipsförmum völskunum meður
vafri að landi, eg skaða ei tel,
því út fyrir kaupstaði íslenskt í veður
ef hún sér vogar, þá frýs hún í hel.
HEIMILDIR
Bjarni Sæmundsson 1932. Spendýrin.
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar,
Reykjavík.
Nowak, R.M. 1990. Walker’s Mammals of
the World (5. útgáfa). Tlie Johns
Hopkins University Press, Baltimore and
London.
Lagerlöf, Selma 1952. Nils Holgerssons
underbara resa genom Sverige. Bonniers,
Stockholm (frumútgáfa 1906-7).
Petsch, H. 1967. Urania Tierreich. Sáuge-
tiere. Urania-Verlag, Leipzig/Jena/Ber-
lin.
Stefán Aðalsteinsson 1987. Villtu spen-
dýrin okkar. Bjallan, Reykjavík.
Van den Brink, K.H. 1958. Alla Europas
dággdjur. Översáttning av Lars Silén.
Bonniers, Stockholm.
Whitaker, J.O. 1980. The Audubon Soci-
ety Field Guide to North American
Mammals. Alfred A. Knopf New York.
PÓSTFANG HÖFUNDAR
Örnólfur Thorlacius
Menntaskólanum við Hamrahlíð
105 REYKJAVÍK
144