Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 72

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 72
hæg, geta tekið milljónir ára, a.m.k. ef vatn er af skornum skammti í berginu. Engin skörp skil eru milli þeirra efnahvarfa sem leiða til samlímingar setlaga og þeirra sem leiða til nrynd- breytingar. í báðum tilfellum er aðal- lega um það að ræða að steinefni, þ.e. steindir, leysast upp í vatni en aðrar falla síðan út. Segja má að samlíming verði á tiltölulega litlu dýpi, niður á nokkra kílómetra, en mynd- breyting á ineira dýpi þar sem hiti og þrýstingur er hærri. I storkubergi sem liggur ofarlega í jarðskorpunni verða efnahvörf hlið- stæð þeim sem valda samlímingu setlaga. Þessi hvörf leiða til myndunar holufyllinga í sprungum og glufum í berginu. Holufyllingarnar eru gerðar úr steindum eins og bergkristal, kalki og ýmsum geislasteinum. Stundum valda umrædd efnahvörf allmikilli um- kristöllun á litlu dýpi þar sem jarðhiti er. Slíkt berg kallast ummyndað og er víða að finna hér á landi. Hins vegar er eiginlegt myndbreytt berg hvergi sjáanlegt á yfirborði, en ýmsar rann- sóknir benda til þess að það sé ríkjandi á nokkurra kílómetra dýpi. KRISTALBYGGING SILÍKATA Nær allt berg er samsett úr steindum, einni eða fleiri. Hver steind hefur ákveðna kristalbyggingu og er þessi bygging aðaleinkenni hennar. Sumar steindir hafa líka ákveðna efnasam- setningu, ákveðna eðlisþyngd, lit o.l'l. Aðrar steindir hafa hins vegar nokkuð breytilega efnasamsetningu sem aftur veldur því að eðlisþyngd og fleiri eðliseiginleikar eru nokkuð breyti- legir. Aðaluppistaðan í nær öllu storku- bergi eru steindir sem tilheyra ilokki steinda sem nefnist silíköt. I þeim öllum er kísill og súrefni auk ýmissa annarra efna. Silíkötum er skipt niður í 5 meginflokka eftir kristalbyggingu. Þeir nefnast eyjasilíköt, keðjusilíköt, bandsilíköt, lagsilíköt og grindarsilíköt. Auk silíkata eru ýmis oxíð tiltölulega algeng í sumu storkubergi, einkum oxíð af járni og títan. Frumeiningin í kristalgrind allra silíkata er „sameindin“ Si04 (hér nefnd KS-frumeining) sem myndar ferflötung með Si í miðju en O á hornunum (1. mynd). Mismunandi kristalbygging ræðst svo af því hvort og hvernig KS- frumeiningarnar tengjast saman. KS- frumeiningin hefur hleðsluna -4, þar sem gildi kísils er +4 og súrefnis -2. Séu KS-einingarnar alveg aðskildar er um eyjasilíköl að ræða. Á milli eyjanna eru atóm annarra frumefna, eins og járns og magnesíums, sem halda þeim saman og vega upp nei- kvæða hleðslu KS-eininganna (2. mynd). KS-frumeiningarnar geta tengst saman og myndað keðjur þannig að 1. mynd. Silíkat-einingin Si04. Ferflöt- ungurinn, þ.e. kísil-súrefniseiningin, er frumbyggingareining í öllum silíkötum. Hið smáa kísilatóm í einingunni sést ekki. Súrefnisatómin Ijögur (stóru hringirnir) skyggja á það. Miðja hvers súrefnisatóms liggur í horni reglulegs ferflötungs en kísilatómið er í honum miðjum. Svarti punkturinn sýnir stærð kísilatómsins miðað við súrefnisatómið. 182
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.