Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 76
okkur bráð með efnasamsetningu og
hitastig sem samsvarar punkti A á 5.
mynd. Við kælingu á þessari bráð nær
það vökvaferlinum við hitastig t. Þá
tekur bráðin að kristallast og myndast
kristallar með efnasamsetningu B. Þar
sem kristallarnir hafa aðra samsetningu
en bráðin, eru magnesfumríkari, hlýtur
örlítil kristallamyndun að leiða til þess
að bráðin verður járnríkari en hún var
upphaflega. Ætla mætti að þessi
breyting leiddi til þess að bráðin
hliðraðist frá efnajafnvægi við
kristallana. Svo getur líka verið, en
ekki nauðsynlega. Öll efnakerfi leita í
átt til efnajafnvægis en þau þurfa tíma
til að ná slíku jafnvægi. Sé kæling
nægilega hæg má gera ráð fyrir að
efnajafnvægi ríki ætíð milli bráðar og
kristalla. Viðhald efnajafnvægis leiðir
til þess að um leið og kristallar
myndast taka þeir að hvarfast við
bráðina, og eftir því sem kristöllun
miðar breyta þeir sífellt um efna-
sainsetningu, verða járnríkari. Sömu
sögu er að segja um bráðina. Öll
bráðin hefur náð að kristallast þegar
kristallarnir hafa sömu efnasamsetn-
ingu og bráðin hafði upphaflega. Þá er
hitinn t2.
Verði kristöllun tiltölulega hröð
viðhelst efnajafnvægi ekki. Þegar
kristöllun verður við þessar aðstæður
hlaðast einfaldlega utan á ólivín-
kristallana sífellt járnríkari lög, uns öll
bráðin er storknuð.
Kristallar flestra steinda eru eðlis-
þyngri en sú kvika sem þeir myndast úr
og hafa því tilhneigingu til að sökkva.
Sökk kristalla getur komið í veg fyrir
efnahvörf þeirra við kvikuna og þar
með að efnajafnvægi viðhaldist. Við
sökk kristalla í því kerfi sem 5. mynd
lýsir myndaðist massi sem væri af
magnesíumríku ólivíni neðst en eftir
því sem ofar dregur yrði hann sífellt
járnríkari. Við ójafnvægisástand myndi
kvikan ætíð ná efnasamsetningu
fayalíts í lok krislöllunar, óháð því
hver samsetning hennar væri í upphafi.
Kristöllunarferli annarra bland-
steinda, eins og pýroxena, amfíbóla og
feldspata, er í aðalatriðum eins og
kristöllunarferli ólivíns, en þessi silíköt
eru aðaluppistaðan í öllu algengu
slorkubergi.
Mg2Si04 Fe2Si04
4. mynd. Ólivínkerfið.
Lóðrétti ásinn sýnir hita
en sá lárétti efnasamsetn-
ingu frá 0 til 100% fayalít.
Af því leiðir að sam-
setningin er 100% forsterít
í vinstra horninu en 0% í
því hægra. Sjá nánar í
texta. Byggt á gögnum frá
Bowen og Schairer (1935).
186