Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 83

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 83
myndast þá meðal annarra veðrunar- steinda ýmis járnoxíð, sem þekja sprungufleti og yfirborð korna í berginu og gefa því dökka ásýnd. Þess vegna hefur gamalt basalt, sérstaklega ef það inniheldur ólivín, tilhneigingu til að vera dökkt á litinn. Georg P. L. Walker, breskur jarð- fræðingur sem vann við jarðfræði- kortlagningu á Austurlandi á sjötta og sjöunda áratugnum, skipti basalti í þrjá hópa eftir útliti, í ólivín-basalt, díla- basalt og þóleíl. Tvö fyrstu nöfnin eru berggreiningarheiti en hið síðast- nefnda bergfræðiheiti. Dílabasaltið þekktist á feldspatdílum en ólivín- basaltið fyrst og fremst á veðrun þess sem gerir þetta berg mjög dökkt og oft morkið. Stundum má sjá díla af ólivíni í þessu bergi. Morkið verður ólivín- basaltið vegna þess að ummyndunar- steindir, sem myndast úr ólivíninu, eru rúmmálsfrekari en það og því smá- springur allt bergið líkt og steypa sem skemmist af alkalívirkni. Það berg sem Walker nefndi þóleít er grátt og myndar gjarnan heillegri lög en ólivín- basaltið. Skipting Walkers grund- vallaðist á því að hver þessara gerða basalts myndar oft syrpur með mörgum hraunlögum sem rekja má milli fjarða austanlands og því var þessi flokkun basalts lykill að kortlagningu jarð- lagastaflans. Því miður eru nafngiftir Walkers óheppilegar, sérstaklega notkun orðsins þóleít. Hér er þetta orð notað í annarri merkingu en í berg- fræði og það hefur þannig fengið tvöfalda merkingu. Margt ef ekki mestalll það basalt sem Walker flokkar sem ólivín-basalt og dílabasalt mundi teljast þóleít samkvæmt bergfræðilegri skilgreiningu. Þess ber þó að geta að til er tvenns konar þóleít, annars vegar kvars-þóleít og hins vegar ólivín-þóleít. Það berg sem Walker nefnir þóleít mun oftasl svara til kvars-þóleíts samkvæmt bergfræðilegri skilgreiningu og ólivín- basall Walkers mun oftast svara til ólivín-þóleíts. Þrátt fyrir þetta er tæplega fært að ryðja úr vegi orðinu þóleít sem ásýndarheiti vegna mikillar og almennrar notkunar. Skárri kostur virðist vera að nota orðið í tvenns konar merkingu en þá er líka nauð- synlegt að gera sér ætíð fulla grein fyrir því í hvaða merkingu orðið þóleít er notað hverju sinni. Bergfræðileg heiti eru oft notuð yfir berg sem skoðað er úti við, eins og ríólít eða dasít, svo dæmi séu nefnd. Samt er það svo að ekki er mögulegt að sjá nein afgerandi einkenni sem gera berggreiningu örugga, heldur þurfa efnagreiningar að koma til. Það sem hér er um að ræða er ágiskun byggð á reynslu, þar sem reynslan hefur gert það kleift að tengja saman útlit bergs og efnainnihald. Við athuganir úti við má oft sjá ákveðin einkenni á jarð- myndunum, eins og straumflögun, sem henta til að aðskilja þær frá öðrum jarðmyndunum við kortlagningu á útbreiðslu þeirra. Utlit bergsins gæti gefið vísbendingu um að það sé súrt, annaðhvort dasít eða ríólít. Með því að safna einu sýni úr jarðmynduninni og efnagreina það fæst úr því skorið hver bergtegundin er. Jarðfræðingur sem síðan útskýrir fyrir nemum svæði sem hann hefur kortlagt getur bent á jarðmyndunina og sagt: „Þetta er dasít.“ Það er mikilvægt að átta sig á því hvernig hann komst að þessari niðurstöðu. Bergfrœðileg flokkun Þessi flokkun storkubergs byggist á tveim þáttum. Annars vegar á steinda- samsetningu bergsins, bæði hverjar steindirnar eru og innbyrðis hlutföllum þeirra, hins vegar á efnagreiningum. Tilgangur þessarar flokkunar er fyrst og fremst sá að greina skyldleika 193
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.