Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 94

Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 94
Íslandít er að finna á allmörgum stöðum á Islandi, eins og í Sleggju ofan Kolviðarhóls í Hengli, í Heklu og Þingmúla á Héraði. Þessu bergi var fyrst lýst á síðastnefnda staðnum. ísúrt, dulkornótt berg er yfirleitt nefnt andesít eftir þeim stað þar sem því var fyrst Iýst, Andesfjöllum í Suður- Ameríku. Andesít er algengt víða um heim þar sem eldvirkni er eða hefur verið á mótum jarðskorpufleka sem kýtast saman. I þessu bergi eru dílar af hornblendi og bíótíli algengir auk plagíóklass, en tvær fyrstnefndu steind- irnar bera þess vott að kvikan hafi verið tiltölulega vatnsrík. í íslandíti er plagíóklas algengasta steindin en síðan pýroxen í stað hornblendis og bíótíts. Þessi munur í steindasamsetningu er meginástæða þess að ísúru, dul- kornóttu bergi á íslandi var gefið sérstakt nafn, íslandít. Ennfremur er íslandít járnríkara en andesít. Sumir telja réttilega að binda ætti nafnið íslandít við ísúrt berg af þóleítísku bergröðinni. Væri það gerl teldist súrt berg úr Heklu ekki til íslandíts, þar sem það er millistig milli lágalkalísku (þóleítísku) og alkalísku bergraðanna. Perlusteinn Eins og hrafntinna og biksteinn er perlusteinn súrt, glerkennt berg. Hann er ljós á lit og vatnsríkur (>3-5%). Hið háa vatnsinnihald í perlusteininum veldur því að hann þenst út þegar hann er hitaður upp í um 900 gráður. Við þennan háa hita er glerið orðið deigt og vatnið, sem hefur breyst í gufu, vcldur þenslunni. Perlusteinn sem hcfur verið malaður í 1-2 mm korn myndar léttar baunir við þenslu. Þaninn perlusteinn þykir gott fylliefni í léttsteypu vegna þess hve rúmþyngd baunanna er lág (0,1-0,2 g fyrir hvern rúmsentímetra) en styrkur tiltölulega mikill. Perlusteinn finnst í miklu magni í Prestahnúk á Kaldadal. Ekki hefur þó þóll hagkvæmt að vinna hann þar vegna þess hve staðurinn er langt frá höfn og vegir slæmir. Ríólít Þetta hcrg er súrt og dulkornótt. Hér á landi hefur það lengst af verið kallað líparít. Það nafn er komið frá Liparieyjum sem eru nálægt Sikiley og tilheyra Ítalíu. Líparít er sömu merk- ingar og ríólít en það síðarnefnda hefur nú alþjóðlega viðurkenningu og því ástæða til að nota það í stað líparíts. Þetta berg er mjög keimlíkt dasíti í útliti og ekki öruggt að greina þessar tvær bergtegundir að nema með efnagreiningu. Útfellingar af járni eru algengar og líta þær út eins og ryð og gefa berginu gulbrúnan eða brúnan lit, a.m.k. á sprunguflötum. Ríólít og skylt súrt, dulkornótt berg er að finna mjög víða hér á landi. Stærsta svæðið með slíku bergi er umhverfis Torfajökul. Túff Nafnið túff er notað um samlímda gosösku. Nafnið gefur til kynna hver ásýnd og uppruni bergsins er en segir ekkerl lil um efnasamsetningu þess. Vegna snöggrar kælingar er túff glerkennt. Einstök korn geta verið kúlulaga og full af smáblöðrum, eða köntuð, en það sést sjaldan með berum augum vegna smæðar kornanna. Þá geta verið í því kristallabrot, brot af dílum sem mynduðust áður en kvikan barst til yfirborðs. Sé ástæða til að geta nánar um berglegund þá sem túffið er úr má gera það með því að hafa bergheitið á undan sem forskeyti, t.d. basalt-túff eða einfaldlega basískl eða súrt túff, ef maður er ekki viss um hver bergtegundin er umfram það að maður lelur sig geta gert greinarmun á súru, ísúru og basísku bergi. 204
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.