Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 97

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 97
Hass og marjúana hafa ýmsa lyfja- verkun - draga til dæmis úr augnþrýstingi í glákusjúklingum, halda í sketjum ógleði af völdum krabbameinslyfja og örva matarlyst alnæmissjúklinga. En aukaverk- anir kannabisefnanna eru svo skaðlegar að þau eru sjaldan notuð. Nú binda menn vonir við að rannsóknir á kannabis- nemum í heila og náttúrlegum boðefnum eins og anandamíði geri mönnum kleift að framleiða lyf með lækningarmætti kannabisefnanna án aukaverkananna. Miðunarkerfi vísar blindum veg „Hnattmiðunarkerfið" Global Position- ing System, eða GPS, notar gervitungl með nákvæmum atómklukkum til að staðsetja hluti á jörðu niðri með nokkurra metra eða tuga metra ná- kvæmni. Vinna að kerfinu hófst fyrir tveimur áratugum og það var tekið í notkun árið 1978. Þá náði það aðeins til hluta jarðar en eftir því sem gervi- tunglunum fjölgaði stækkaði sviðið. 1 sumar var kerfið fullbúið, þegar tuttug- asta og fjórða og síðasta gervitunglinu var skotið á loft. Það spannar nú alla jörðina. GPS er í eigu bandan'ska varnar- málaráðuneytisins og frumhlutverk þess er hemaðarlegt, enda var því mjög beitt í Flóabardaga hinum síðari. Samt geta aðrir nýtl sér kerfið með fremur ódýrum tækjabúnaði á jörðu. Hluti kerfisins er þó lokaður öðrum en eigendum þess sem geta miðað því af enn meiri nákvæmni en hér hefur verið greint frá. Kanadískur verkfræðinemi, Charles La Pierre, hefur hannað viðtæki sem auð- veldar blindum mönnum og sjónskertum að rata í borgum. Sjálfur er La Pierrc sjónskertur og getur ekki lesið götunöfn á skiltum. Hann kortlagði 20 hektara svæði í Otlawaborg með hjálp GPS- kerfisins og skráði hnitin í gagnagrunn. Þegar notandi þrýstir á hnapp tilkynnir talgervill honum á hvaða götu eða götu- horni hann sé staddur. Frumgerð tækisins vó 11 kíló en La Picrre hefur nú fengið styrk til að hanna endurbætta gerð sem verður á stærð við vasadiskó, innan við eitt kg og með heyrnartólum í stað hátalarans í upphaflega tækinu. Fyrstu reiðhestarnir Menn hafa veitl villihesta á sléttum Evrópu og Asíu allt frá því á ísöld. Villtum hestum í Evrópu var útrýmt seint á 19. öld en þeir hjara enn á þurrgresjum í Asíu. Til skamms tíma var talið að hestar helðu fyrst verið tamdir á sléttum Mið-Asíu um hálfu öðru árþúsundi f.Kr. Nú er ljóst að hrossaræktin er mun eldri. Villihestar lifa í tvenns konar félags- heildum. Annars vegar eru stóð, hryssur, tryppi og folöld undir forystu eins stóðhests, hins vegar flokkar fola sem fiakka um hryssulausir. Vegir folanna eru órannsakanlegir en slóðin fara troðnar slóðir. Veiðimenn hafa því einkum náð að fella hryssur og ófullvaxin afkvæmi þeirra. Eftir að menn fóru að ala hesla má búast við að þeir hafi valið til slátrunar talsvert af ungum folum sem í senn voru óstýrilátir og óþarfir til að halda við stofninum. í Úkraínu hafa fundist 6000 ára gömul merki um landbúnað. Menningarskeiðið, sem er frá bronsöld, er kennl við Sredni Stog, eyju úti í Dnjeprfljóti, en leifarnar voru flestar grafnar upp í Dereivka, þoipi við vesturbakka Dnjepr 250 km sunnan við Kíev. Hlutfall hrossabeina í matar- leifum er óvenjuhátt. Kynjahlutfallið og aldur dýranna bendir til þess að þau hafi verið alin fremur en veidd, auk þess sem leifar hrossa hala fundist á svæðum þar sem villihestar hafa tæpasl þrifist. Þetla eru elstu merki um hrossaeldi sem fundist hafa. Ljóst er að hestamir voru aldir til slátrunar. En voru þeir líka tamdir? í Dereivka fannst höfuð og framfótur af sex eða sjö ára stóðhesti og benda 207
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.