Náttúrufræðingurinn - 1993, Side 110
Ari Trausti Guðmundsson
Jökla skiptir skapi
ÁR MEÐ MIKLUM
RENNSLISSVEIFLUM
Langflestar vatnsmeiri ár landsins eru
jökulár, ýmist að öllu leyti eða veru-
legum hluta. Þær fá vatn sitt helst úr
jökulbráð eins og nafnið bendir til.
Bein inngeislun sólar og hlýtt loft sem
leikur um jökulís bræðir hann einkum
og leggur fallvötnunum til vatn, oftast
með miklu gruggi úr fíngerðri berg-
mylsnu; leir, silti og sandi. Rennsli
jökuláa er þar með, eins og flestir vita,
háð lofthita, skýjafari og vindum. Með
rennsli er átt við hversu mikið af vatni
áin ber fram á einhverri tímaeiningu.
Algengt er að nota rúmmetra og
sekúndu.
Rennsli jökuláa sveiflast með árstíða-
bundnu veðurfari og sólgeislun á
hverjum sólarhring, með öðrum orðum
bæði árstíð og eyklum. Eyktir eru forn
tímamörk sólarhringsins, með þriggja
stunda millibili. Þannig urðu til átta
stutt tímabil sem menn skiptu sólar-
hringnum upp í fyrr á tímum.
Vatnsmagnið er oftast í lágmarki að
næturlagi ef horfl er á dægursveifluna
eina, þegar lofthili er jafnan lægstur á
hverjum sólarhring og nokkuð um
liðið síðan sól settist. Ef horft er til
árssveiflunnar er rennslið í lágmarki í
köldustu mánuðum hvers árs að meðal-
tali, en það eru janúar og febrúar.
Auðvitað á þetta við um meðaltöl
rennslis, eða hina grófari drætli mynd-
arinnar, því margvíslegar skammtíma-
undantekningar eru frá reglunni, t.d.
vegna jökulhlaupa, asahláku á miðjum
vetri eða mikilla vorhreta.
Dægursveiflan getur t.d. kornið fram
sem tvöföldun rennslis en árssveiflan
getur sést sem allt að 100-földun
rennslins. Fer það m.a. eftir því hve
stór jökulþátlurinn er í ánni, miðað
við lindarvatn eða yfirborðsvaln.
JÖKLA Á AUSTURLANDI
Jökulsá á Dal eða Jökulsá á Brú er
ein mesta og lengsta á landsins. Þeir
sem við hana búa ofantil nefna ána
oftast Jöklu. Vatnasvið hennar er 3700
ferkílómetrar, þar af eru um 900
ferkílómetrar jökull (stór hluti Brúar-
jökuls). Frá upptökum í norðaustan-
verðum Vatnajökli til sjávar í Héraðs-
flóa eru um 150 kílómetrar. Jökulsá
fellur víða þröngt. Meðal annars hefur
hún grafið hrikalegasta gljúfur landsins
undir Ytri Kárahnúk, nokkuð ofarlega í
farveginum. Þar eru 160 metra lóðréttir
hamraveggir. I byggð fellur áin langt
eftir Jökuldal, meðfram þjóðvegi 1, og
er mörgum utan fjórðungs kunn þess
vegna.
I Jöklu falla a.m.k. 15 ár (flestar
dragár) og allmargir lækir. Stærstar eru
Kringilsá og Sauðá, en aðrar þekktar
eru t.d. Hrafnkela, Gilsá og Laxá.
Meðalrennsli árinnar er um 220 rúm-
metrar á sekúndu, eða rúmlega helm-
Náttúrufræðingurinn 62 (3-4), bls. 220-224, 1993. 220