Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 110

Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 110
Ari Trausti Guðmundsson Jökla skiptir skapi ÁR MEÐ MIKLUM RENNSLISSVEIFLUM Langflestar vatnsmeiri ár landsins eru jökulár, ýmist að öllu leyti eða veru- legum hluta. Þær fá vatn sitt helst úr jökulbráð eins og nafnið bendir til. Bein inngeislun sólar og hlýtt loft sem leikur um jökulís bræðir hann einkum og leggur fallvötnunum til vatn, oftast með miklu gruggi úr fíngerðri berg- mylsnu; leir, silti og sandi. Rennsli jökuláa er þar með, eins og flestir vita, háð lofthita, skýjafari og vindum. Með rennsli er átt við hversu mikið af vatni áin ber fram á einhverri tímaeiningu. Algengt er að nota rúmmetra og sekúndu. Rennsli jökuláa sveiflast með árstíða- bundnu veðurfari og sólgeislun á hverjum sólarhring, með öðrum orðum bæði árstíð og eyklum. Eyktir eru forn tímamörk sólarhringsins, með þriggja stunda millibili. Þannig urðu til átta stutt tímabil sem menn skiptu sólar- hringnum upp í fyrr á tímum. Vatnsmagnið er oftast í lágmarki að næturlagi ef horfl er á dægursveifluna eina, þegar lofthili er jafnan lægstur á hverjum sólarhring og nokkuð um liðið síðan sól settist. Ef horft er til árssveiflunnar er rennslið í lágmarki í köldustu mánuðum hvers árs að meðal- tali, en það eru janúar og febrúar. Auðvitað á þetta við um meðaltöl rennslis, eða hina grófari drætli mynd- arinnar, því margvíslegar skammtíma- undantekningar eru frá reglunni, t.d. vegna jökulhlaupa, asahláku á miðjum vetri eða mikilla vorhreta. Dægursveiflan getur t.d. kornið fram sem tvöföldun rennslis en árssveiflan getur sést sem allt að 100-földun rennslins. Fer það m.a. eftir því hve stór jökulþátlurinn er í ánni, miðað við lindarvatn eða yfirborðsvaln. JÖKLA Á AUSTURLANDI Jökulsá á Dal eða Jökulsá á Brú er ein mesta og lengsta á landsins. Þeir sem við hana búa ofantil nefna ána oftast Jöklu. Vatnasvið hennar er 3700 ferkílómetrar, þar af eru um 900 ferkílómetrar jökull (stór hluti Brúar- jökuls). Frá upptökum í norðaustan- verðum Vatnajökli til sjávar í Héraðs- flóa eru um 150 kílómetrar. Jökulsá fellur víða þröngt. Meðal annars hefur hún grafið hrikalegasta gljúfur landsins undir Ytri Kárahnúk, nokkuð ofarlega í farveginum. Þar eru 160 metra lóðréttir hamraveggir. I byggð fellur áin langt eftir Jökuldal, meðfram þjóðvegi 1, og er mörgum utan fjórðungs kunn þess vegna. I Jöklu falla a.m.k. 15 ár (flestar dragár) og allmargir lækir. Stærstar eru Kringilsá og Sauðá, en aðrar þekktar eru t.d. Hrafnkela, Gilsá og Laxá. Meðalrennsli árinnar er um 220 rúm- metrar á sekúndu, eða rúmlega helm- Náttúrufræðingurinn 62 (3-4), bls. 220-224, 1993. 220
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.