Náttúrufræðingurinn - 1993, Page 124
mundi Jónassyni. Fararstjórar voru Frey-
steinn Sigurðsson og Guttormur Sigbjarnar-
son. Leiðsögumenn voru Sigurður Magnús-
son gróðurfræðingur, Flaukur Tómasson
jarðfræðingur og Skúli Víkingsson jarð-
fræðingur. Gist var þrjár nætur á FJvera-
völlum í tjöldum og í skálum FI. Ferða-
félagið hafði góðfúslega látið taka frá rúm
í skálunum fyrir þá þátttakcndur sem þess
óskuðu. Veður var lengst af kyrrt og átaka-
lítið, en sólarlítið, þokuþungt og vætusamt
á köflum. Þátttakendur voru 70 talsins. Auk
leiðarvísis fararstjóranna höfðu leiðsögu-
menn tekið saman 8 bls. ágrip um náttúru-
far og náttúrufurður á Kjalvegi.
Lagt var upp frá Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavfk upp úr kl. 9 að morgni fimmtu-
dags, 25. júlí. Var farið um Þingvöll að
Geysi, en þar var gert stutt hádegishlé. Frá
Geysi var farið að Gullfossi þar sem Haukur
lýsti myridun gljúfursins og ummerkjum
eftir hamfarahlaup. Þaðan var ekið inn að
Grjótá og litið á jökulgarða, jökulsporða-
landslag og uppgræðslu í leiðinni. Við
Grjótá var áð og gengið í lognregni inn í
Kórinn, sem er klettaþröngir, myndaðar í
miklum vatnagangi í lok fsaldar. Haldið var
þaðan áfram yfir Bláfellsháls og í Hvítár-
nes. Þar var gert stutt hlé og litið á gróður
og landmótun. Úr Hvítárnesi var ekið á
Hveravelli og litið á leiðinni á strandlínur
eftir forn jökullón á Kili. Komið var um kl.
19.30 á Hveravelli.
Á föstudagsmorgun, 26. júlí, var lagt upp
um kl. 10 og stefnt inn f Kerlingarfjöll. Fyrst
var áð við Gýgjarfoss í Jökulfalli, skoðaðar
jarðmyndanir og rakin myndun fossgilsins,
en þaðan var haldið beint að skíða-
búðunum í Ásgarði. Þá var dumbungsvæta
og ófýsilegt að setjast til snæðings í grasið.
Valdimar Örnólfsson, skfðaútgerðarmaður
og staðarhaldari, bjargaði því við og bauð
þátttakendum afnot af matsal búðanna, sem
var þegið með þökkum. Eftir þessa hádegis-
hressingu var ekið upp á Þröskuld og gengið
inn eftir eða meðfram gili Ásgarðsár, svo
langt sent hver vildi. Ötulasti hópurinn gekk
undir leiðsögn Sigurðar inn í Hveradal, en
það reyndist hátt í þriggja tíma ganga. Frá
Asgarði var farið um kl. 16 en kaffihlé var
gert í leitarmannaskálanum í Efra-Bugi.
Stansað var einnig við Svartárbotna og á
Dúfunesskeiði og greint frá jarðmyndun,
landmótun og lífsbaráttu gróðursins við
öræfamörkin, einkum melagróðursins. Á
Hveravelli var komið laust fyrir kl. 20.
Laugardag, 27. júlí, var lagt upp um kl. 10
og stefnt norður á heiðar. Veður var þung-
búið þennan dag en þó hægt, skúrir annað
veifið og blantt á en undir kvöld glaðnaði
heldur til. Hjá gróðurrannsóknareitunum við
Blöndustíflu tók Ingvi Þorsteinsson gróður-
farsfræðingur á móti hópnum og skýrði frá
árangri gróðurræktartilraunanna. Ein ntegin-
niðurstaða þeirra var sú að náttúran er
máttugri en maðurinn, þó að hann geti veitt
henni afgerandi hjálp þegar vel hagar til.
Þaðan var ekið að Blöndubúðum, en
staðarformenn Landsvirkjunar, Sveinn Þor-
grímsson og Matthías Loftsson, sáu til þess
að heimila afnot af matsal búðanna fyrir
hádegishlé, sem vel var þegið og þakkað. I
Blöndubúðum var snúið aftur, en á baka-
leiðinni var áð á Áfangafelli og horft yfir
heiðar og uppistöðulón. Um kl. 17 var
staldrað við til tveggja tíma í Kúluflá austan
undir Sandkúlufelli, þar sent rústaform og
hálendismýragróður voru skoðuð. Komið
var um kl. 19.30 á Hveravelli. Efnt var til
veðurspárkeppni á föstudagskvöld um
veður laugardagsins og keppni í plöntu-
greiningu á laugardalskvöldið. Úrslit voru
kynnt og verðlaun afhent á sunnudags-
morgun.
Frá Hveravöllum var haldið upp úr kl. 11
á sunnudagsmorgun, 28. júlí, og stefnt til
Reykjavfkur. Hádegishlé var gert á gróður-
torfunum vestan við Hvítárbrú. Þar var
síðan skift liði. Gekk hluti hópsins með
leiðsögumönnunum suður fyrir Bláfell og
niður í Fremstaver til móts við bflana. Var
það fjögurra tíma gangur, en á leiðinni var
einkum hugað að ummerkjum eftir jökul-
hlaup og farvegum hamfarahlaupa. Bíla-
fararnir skoðuðu farvegi á Bláfellshálsi,
malarása vestan í honum og gróður í
Fremstaveri. Þaðan var farið um kl. 19 en
stansað var hjá Brunnalækjum neðan Grjót-
ár og skoðaðar leifar eftir fornar kolagrafir.
Áð var svo stutt við Geysi en til Reykja-
víkur var komið um kl. 22.30.
Farin var ferð á Hekluslóðir 17. og 18.
ágúst í samvinnu við Jarðfræðafélag Is-
lands. Leiðbeinendur voru jarðfræðingarnir
234