Náttúrufræðingurinn - 1993, Blaðsíða 70
fræfill; skiptist í
6. mynd. Blómið er stöngull með nokkrum krönsum blaða, oí'tast fjórum. Utar eru
gjarnan tveir hringir ófrjórra blaða seni saman kallast blómhlíf. Yst eru bikarblöð, oft
græn. Innan við þau koma krónublöð, oft stór og skærlituð. Innan við blómhlífina sitja
æxlunarfærin í tveimur hringjum og er litið svo á að bæði karl- og kvenkyns æxlunar-
færin sitji á, eða í, ummynduðum blöðum. Hver fræfill er eitt smágróblað og skiplist í
frjóþráð og frjóhnapp sem er smágróhirsla. Frævan er stórgróblað og skiptist í fræni, stíl
og eggleg sem geymir eggbúin en þau samsvara nokkurn veginn stórgróhirslu.
Æxlun og frœþroski hjá blómplöntum
Frævan, kvenhluti blómsins, er oftast
flöskulaga og má skipta henni í þrjá
hluta: fræni (sem er efsti hlutinn og
„lendingarpallur“ frjókornsins), stíl og
eggleg sem er neðst (6. mynd). I egg-
leginu eru eggbúin. I hverju eggbúi er
ein fruma sem skiptir sér með rýri-
skiptingu eins og áður er sagt. Ein af
þeim fjórum frumum sem til verða við
þá skiptingu kallast stórgró. Eftir
nokkrar skiptingar í stórgróinu verður
til fullþroskaður kvenkynliður sem
telur átta kjarna í sjö frumum. Af þess-
um sjö frumum kvenkynliðsins verður
ein að eggfrumu. Hjá blómplöntum
myndast seinna fræhvíta úr tvíkjarna
frumunni en hinar fimm deyja að lok-
um án þess að koma frekar við sögu.
Eftir að frjókornið hefur spírað á
fræninu vex örmjó frjópípa niður stíl
frænisins og í átt að eggfrumunni.
Fremst í henni er frjópípukjarninn en
aftar sáðkjarnarnir tveir. Ólíkt berfræv-
ingum verður frjópípan því að vaxa
gegnum vef móðurplöntunnar áður en
frjóvgun verður. Móðurplantan getur
hindrað vöxt sumra frjókorna og úti-
lokað þau frá því að „feðra“ sín af-
kvæmi. Þetta val lýtur erfðafræðilegri
stjórn þannig að vöxtur frjókorns sem
er af sömu arfgerð og móðurplantan
sjálf er ekki leyfður. Hjá nokkrum
hópum blómplantna er það þó arfgerð
föðurplöntunnar sem ræður, ekki að-
eins arfgerð frjókornsins.
Þegar frjópípan kemur niður í egg-
legið vex hún í átt að einhverju eggbúi
og inn í það. I eggbúinu verður tvöföld
frjóvgun, sem ekki er þekkt hjá öðrum
lífverum en blómplöntum og hugsan-
lega einni ættkvísl berfrævinga. Annar
frjópípukjarninn rennur saman við egg-
frumuna og myndar tvílitna okfrumu
sem verður svo að plöntufóstrinu eða
kíminu. Hinn rennur saman við tví-
64