Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1993, Blaðsíða 44

Náttúrufræðingurinn - 1993, Blaðsíða 44
Karl Skírnisson og Helga Finnsdóttir Hársekkj amaurinn Demodex canis finnst á hundi hér á landi A þeim tæpu fimin árum sem liðin eru frá því að banni við innflutningi á hund- um og köttum var aflétt hafa um 130 hundar og 70 kettir verið fluttir til lands- ins. Innflutningurinn er háður ýmsum skilyrðum, m.a. heilbrigðisvottorðum frá upprunalandinu og 8-12 vikna sóttkví í Einangrunarstöðinni í Hrísey. Þar er fylgst grannt með heilbrigði dýranna auk þess sem þau eru rannsökuð með tilliti til ýmissa sjúkdóma og sníkjudýra. Þrátt fyrir varúðarráðstafanir er sú hætta ávallt fyrir hendi að dýrin beri með sér sjúkdóma eða sníkjudýr í innlend kyn- systkini að aflokinni sóttkví í Hrísey. Eftirfarandi dæmi greinir frá sníkjudýri sem komst þessa leið óáreitt inn í landið. Um var að ræða hársekkjamaurinn Demodex canis sem er allalgengt sníkju- dýr á hundum víða í nágrannalöndunum en hefur aldrei verið staðfestur hér á landi. Attfætlumaur þessi fannst á átta mánaða gömlum bolabít nokkrum vikum eftir að hann kom úr átta vikna sóttkví í Einangrunarstöðinni í Hrísey. Þegar vart varð við allmarga hringlaga bletti á baki hundsins var farið með hann til dýra- læknis. Smásjárathugun á húðskrapi af einum þessara bletta leiddi í Ijós mikinn fjölda lifandi hársekkjamaura. Bolabítur- inn var meðhöndlaður með lyfi sem drepur hársekkjamaura (Taktic<RI) og standa vonir til að tekist hafi að hindra frekari útbreiðslu sníkjudýrsins í þetta sinn hér á landi. I. mynd. Demodex canis er ntaur sem lifir í hársekkjum hundsins. Fullvaxið verður sníkjudýrið 0,3 mm langt. Hársekkjamaurar sjást ekki með berum augum. Þeir eru langvaxnir (1. mynd) og kvendýrin aðeins lengri en karldýrin. Maurarnir halda venjulega til ævilangt í hársekkjum húðarinnar en geta einnig tekið sér bólfestu í fitukirtlum. Sýking verður oftast frá móður til afkvænta og smitast hvolparnir oftast strax eftir fæð- ingu. Mest ber á sýkingunum í hvolpum og ungum hundum. Sýking í eldri hundum er oft dulin og engin einkenni sjáanleg, en sumir hundar geta orðið illa úti og jafnvel drepist. Sýkingartíðni erlendis er mjög mismunandi eftir landsvæðum og einnig er vitað að hin ýmsu hundakyn eru mis- munandi næm (Boch og Supperer 1983). Lesendum til fróðleiks má geta þess að allmargar tegundir sníkjudýra, sem ekki er vitað til að hér séu landlæg, hafa á undan- gengnum fimm árum fundist í og á hundum og köttum sem dvalið hafa í sótt- kví í Hrísey (Sigurður Richter o.fl. 1993). Sníkjudýrunum hefur verið útrýmt með lyfjum áður en hundarnir eða kettirnir voru afhentir eigendum sýnum en full- komin eyðing á sníkjudýrum er jafnan erfið. Þessi staðreynd sýnir berlega hætl- una sem fylgir því að flytja hingað hunda og/eða ketti eftirlitslaust og ofangreint til- vik sýnir að ákveðin hætta er fyrir hendi að hingað berist sjúkdómsvaldar, þrátt fyrir strangt eftirlit. HEIMILDIR Boch, J. & R. Supperer 1983. Veterinár- ntedizinische Parasitologie. Paul Parey. 533 bls. Sigurður H. Richter, Karl Skírnisson og Matthías Eydal 1993. Sníkjudýr f inn- fluttum hundum og köttum. Dýralœkna- ritið (í prentun). PÓSTFANG HÖFUNDA Karl Skírnisson Tilraunastöð Háskólans í meinafrœði Keldum 112 REYKJA VÍK Helga Finnsdóttir Dýralœknastofunni Skipasundi 15 103 REYKJAVÍK Náttúrufræðingurinn 63 (1-2), bls 38, 1993, 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.