Náttúrufræðingurinn - 1993, Blaðsíða 104
10. mynd. Seftittlingur
Emberiza schoeniclus,
karlfugl í sumarbúningi.
Ljósm. photo R. Chitt-
enden/Rare Bird Photo-
graphic Library.
7. Kvísker í Öræfum, A-Skaft, 23.-24. apríl 1971
(karlf. ad). Hálfdán Björnsson.
8. Kvísker í Öræfum, A-Skaft, 10. maí til 28.
september 1972. Alls sáust fjórir fuglar á
tímabilinu, par og tveir meintir ungar, svo
e.t.v. var um varp að ræða (sjá umfjöllun
síðar). Hálfdán Björnsson.
9. Kvísker í Öræfum, A-Skaft, 15. maí 1977.
Hálfdán Björnsson.
10. Kvísker í Öræfum, A-Skaft, 24.-25. maí 1981
(karlf. ad). Gunnlaugur Pétursson og Kristinn
Haukur Skarphéðinsson (1983).
11. Svínafell í Öræfum, A-Skaft, 9. desember 1981
til 10. janúar 1982. Gunnlaugur Pétursson og
Kristinn Haukur Skarphéðinsson (1983).
12. Kvísker í Öræfum, A-Skaft, 27. maí til 1. júní
1982 (karlf.). Gunnlaugur Pétursson og Erling
Ólafsson (1984).
13. Kvísker í Öræfum, A-Skaft, 3.-4. október
1982 (imm RM7912). Gunnlaugur Pétursson
og Erling Ólafsson (1984).
Eins og sjá má af upptalningunni hér að
framan sást seftittlingur nokkuð reglulega
hérá landi á árunum 1961-1982 en hefur
ekki sést síðan. Það vekur einnig athygli
að allir fuglarnir sáust að Kvískerjum í
Oræfum, að einum undanskildum en hann
sást reyndar í sömu sveit. Seftittlingur er
mjög eindreginn vorgestur en af 15 fugl-
um sást einn í mars, einn í apríl og 11 á
tímabilinu 9.-27. maí. Aðeins tveir sáust
að haustlagi, í október og desember, og
eru þá ónefndir tveir meintir ungar (sjá
tilvik nr. 8).
Sérstaka athygli vekur tilvik nr. 8 en
allt bendir til þess að par hafi orpið að
Kvískerjum og komið upp ungum árið
1972. Þann 10. maí kom karlfugl í garðinn
við bæinn og hvarf aftur sama dag. Fjórum
dögum síðar (14. maí) sást kvenfugl sem
dvaldi þar í a.m.k. tvo daga. Mánuði síðar
(14. júní) sást síðan par í Eystri-Hvammi
austan bæjarins. Ekki virlust fuglarnir
orpnir en voru fremur spakir. Þar dvöldu
þeir fram í ágúst en þá hvarf karlfuglinn.
Ekkert hreiður fannst en 9. júlí sáust þrír
seftittlingar, þar á meðal kvenfugl með
æti í nefi. Ekki sást hann þó bera það í
unga. Þann 28. ágúst, en þá var karlfuglinn
horfinn, sáust tveir fuglar og var annar
þeirra með áberandi ljósari fjaðrajaðra
sem einkennir ungfugla. Þann 9. seplem-
ber komu svo þrír fuglar heim að bæ og
héldu sig þar til 28. september. Einn var
augsýnilega fullorðinn kvenfugl en hinir
tveir voru aðeins ljósari á lit og var röddin
heldur veikari þótt hún væri að öðru leyti
eins. Þessi atburðarás bendir eindregið til
varps. Það er athyglisvert að sama ár varp
seftittlingur einnig í fyrsta sinn í Færeyj-
um, eins og fyrr var getið.
98