Samvinnan - 01.06.1927, Blaðsíða 12
90
SAMVINNAN
samvinnumenn ekki sömu skil. En nauðsynlegt er að
benda á, að það er sami munur á bardag’aaðferð og deilu-
málinu sjálfu. Samvinnumenn hafa svo góðan málstað,
að þeir leggjast aldrei á þann vamarlausa og sigraða.
Sambandinu tókst að fá fremur hentugt
Ný kælitilraun. kæliskip til að taka kjöt á Hvammstanga
og Akureyri nú í haust. Ekki er enn frétt
um söluna en allur aðdragandi þessarar tilraunar var
auðveldari en í fyrra. Þá var kjötverð óvenjulega hátt í
Noregi en lágt í Englandi vegna hinnar óeðlilegu sam-
kepni ameríska kjöthringsins. Nú í ár er aðstaðan önn-
ur og líkari því sem gera má ráð fyrir í framtíðinni.
En stærsta sporið, sem stigið verður þetta
Brúarfoss. ár í kjötmálinu er bygging kæliskipsins
Brúarfoss, sem verður fullbúið á útmán-
uðum í vetur. Þekkja allir samvinnumenn aðdraganda
þess máls. Sambandið byi’jaði í fyrri kreppunni að gera
tilraunir með kælt kjöt í Englandi. Jafnhliða byrjaði Jón
Arnason framkvæmdarstjóri að skrifa um málið og skýra
þýðingu þess. Var síðan að tilhlutun samvinnuflokksins á
þingi borin fram tillaga að skipa nefnd í málið. I þeirri
nefnd voru, auk forstjóra Eimskipafélagsins, tveir fulltrú-
ar kaupmanna og útgerðannanna og tveir fulltrúar
bænda, þeir Jón Ámason og Tr. Þórhallsson. Svo fór um
rannsókn þá, að fulltrúar kaupmanna og útgerðannanna
töldu ekki nauðsyn að sinna málinu og gerðu enga rann-
sókn. En Jón og Tryggvi lögðu mikla vinnu í málið og
gerðu ítarlega skýrslu, sem vakti svo mikla athygli og
eftirtekt meðal hugsandi bænda, að sýnilegt var að málið
mundi ekki verða stöðvað. Jón Ámason hefir síðan Hall-
grímur Kristinsson andaðist, verið fulltrúi landsins í
stjóm Eimskipafélagsins. Hefir hann haldið fast fram
þeirri kröfu, að félagið yrði að stækka til að geta betur
fullnægt flutningaþörfinni og staðist samkepni erlendra
félaga. Sá róður hefir orðið nokkuð þungur, en er hin er-
lenda samkepni fór hraðvaxandi var öllum augljóst, að
Eimskipafélagið varð að eignast meiri skipastól. Hinsveg-