Samvinnan - 01.06.1927, Page 18
86
SAMVINNAN
þús. menn fyrir 115 miljónum. Iðgjöld til félagsins eru
árlega tæpar fjórar miljónir króna.
Félagið hefir fram að þessu búið í leiguhúsi inn í
miðri Kaupmannahöfn. En stjóm félagsins þótti þar of
þröngt um sig og mikil brunahætta. Var í haust lagður
homsteinn að nýrri, veglegri byggingu, sem félagið læt-
ur reisa yst í borginni.
Nú í haust kom út í Danmörku níðpési um
Danskur dönsku kaupfélögin, sem minnir mjög á
B. Kr. pésa B. Kr. móti Sambandinu. Einn af
þektustu mönnum í hópi danskra sam-
vinnumanna. Fr. Voigt í Árósum, svaraði pésanum. Og
af því margt í grein hans er prýðilega sagt, og sýnir auk
þess íslenskum samvinnumönnum, að kaupmannastéttin
í öllum löndum ber sama hug til samvinnustefnunnar,
þykir hlýða að rekja aðalefni hennar. En fyrst skal get-
ið þess, að pésinn var nafnlaus, en gefinn út af kaup-
mannafélögum Dana, „De samvirkende Köbmandsfor-
eninger i Danmark“, og dreift út meðal almennings gef-
ins, eins og bæklingum Bjöms. En upp hefir komist, þótt
leynt ætti að fara, að höf. danskra ritlingsins er upp-
gjafa kaupmaður, sem fengið hefir uppgjöf á 40% af
skuldum sínum.
Hr. Voigt segir, að kaupmenn landsins reyni að
dreifa ritlingnum inn á heimili kaupfélagsmanna. Enn-
fremur hafi þau blöð, sem mesta óvild sýna samvinnu-
félögunum pésann á boðstólum, enda séu árásir hans í
raun og veru aðeins hinar sömu sem notaðar hafi veríð
í Danmörku gegn kaupfélögunum í þau 60 ár, sem þau
hafa starfað þar.
Hr. Voigt undrast ekki árásina, hvorki að efni
né foi*mi, því að hvorttveggja sé gamalkunnugt, heldur
yfir því, að kaupmannastétt alls landsins skuli vilja gefa
út og bera ábyrgð á slíku ritverki. Jafnframt getur hann
þess, að slíkar árásir á félöginu séu nú móðins í nábúa-
löndunum Svíþjóð og Noregi og séu sömu aðilar valdir
að í öllum löndunum.