Samvinnan - 01.06.1927, Page 39

Samvinnan - 01.06.1927, Page 39
SAMVINNAN 117 sinnum forsætisráðherra. Og hann er ennþá tiltölulega ungur maður. Þetta dregur nokkuð úr hinum hættulegu afleiðing- um, sem mjög tíð stjómarskifti hljóta jafnan að hafa í för með sér. í stjómmálum Frakka hefir þróunin jafnan gengið í frjálslynda átt síðan 1871. Áhrif almennings á stjórnar- tilhögun ríkisins hafa farið sívaxandi, en þetta hefir ekki gengið baráttulaust. Borgarastéttin í Par- ís, sem steypti keis- aravaldinu 1870 ótt- aðist, að hér mundi fara sem við hinar fyrri stjómarbylt- ingar. Ef geyst yrði gengið að verki, myndi brátt koma afturkippur og kon- ungsstjórn koma i stað lýðveldis. „Lýð- veldið verður að vera íhaldssamt, ef það á að geta staðist“ var kjörorð sumra helstu forvígismanna lýð- veldisflokksins á ár- unum eftir 1870. Baráttan varð því hér einkum milli hinna frjálslyndu flokka, og hægfara lýðveldissinna, sem oft fengu stuðning konungssinna og kaþólsku kirkjunnar. Undir forustu ýmsra merkra manna, svo sem Gambettu, Waldeck-Rousseaus og Briands varð frjálslynda stefnan yfirsterkari á flestum sviðum og á rúmum mannsaldri breyttist Frakkland frá því að vera Wooilrow Wilson. f 1856 (1. 1921. Háskólakennari i sagnfræði og lögfræði 1889— 1910. Forseti Bandarikjanna 1912 —1921. Ilöfundur Þjöðabandalagsins. Ein- hver merkilegasti hugsjónamaður siðari alda.

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.