Samvinnan - 01.06.1927, Page 51

Samvinnan - 01.06.1927, Page 51
SAMVINNAN 129 urunum, og efnuðu stéttirnar í bæjunum sviftu hann pólitískum áhrifum. Til þess að halda honum í skefj- um var efri deild þingsins skipuð þannig, að borgaram- ir gætu ætíð haft þar meiri hluta. Þessi tilhögun, að láta héraðsþingin kjósa einhvem hluta ríkisþingsins er nú mjög á dagskrá víða um heim. Þróun þingstjómarinnar á 19. öldinni hefir annars farið fram í Hollandi á svipaðan hátt og á Englandi. Þing- ið hefir altaf verið álitinn hinn fullvalda valdhafi, en því hefir verið ráðið af hinni efnaðri borgarastétt. Þrátt fyrir rýmkun kosningarréttarins hefir alþýðan haft lítil áhrif á stjórn landsins, alt til þessa tíma. í stjórnarskrá Austurríkis, sem gekk í gildi 10. nóv- ember 1920 var ákveðið að ríkið skyldi vera lýðveldi og sambandsríki (Confederation). Neðri deild þingsins (Nationalrat) er kosin til fjögra ára með almennum kosningarrétti, en efri deildin (Bundesrat) er kosin af þingum ríkjanna í sambandinu. Hún hefir aðeins ráð- gjafarvald. Annars er öll tilhögun stjómarinnar svipuð og á Þýskalandi. Á Ungverjalandi er þingstjóm að nafninu til, en stjórnarskráin er ekki fullgerð enn. Landið er kallað konungsríki, en konungur er ekki kosinn enn. Þingið er kosið með almennum kosningarrétti, en í rauninni ráða aðalsmenn og stórbændur öllu. Þingið hefir samþykt, að ný stjórnarskrá skuli samin, þegar kyrð sé komin á, eftir hinar miklu byltingar, sem hafa átt sér stað, eftir lok heimsstyrjaldarinnar. Á Suðurlöndum er þingstjórnin ung, og hefir ekki enn náð að festa djúpar rætur. Enda horfir þar öðru vísi við en á Englandi og Mið-Evrópu. Á Suðurlöndum er fjöldi fólks ólæs, og þar er ekki hægt að tala um stjóm- málalíf, eftir vorum skilningi. Vald foringjanna hlýtur að verða þar miklu meira, eins og venja er til í löndum, þar sem alþýðumentun er á lágu stigi. Mentun kjósenda er grundvöllur þingræðisins. Ómentuð alþýða verður jafnan 9

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.