Samvinnan - 01.06.1927, Page 58

Samvinnan - 01.06.1927, Page 58
136 SAMVINNAN sögunnar verður að álykta um framtíðina. Og hver er dómur sögunnar um það hversu best hafi farið á sam- skiftum norrænna þjóða? Skal þá fyrst leitast við að svara því, og athuga fyrsta liðinn, stjórnmálasamstarf norrænu þjóðanna. Norðurlandaþjóðimar, Svíar, Danir, Norðmenn og Islendingar hafa reynt margskonar stjórnmálasamvinnu. Þær hafa allar verið sjálfstæð ríki. En þær hafa jafn- framt reynt margskonar stjómmálasamvinnu. Þær hafa allar verið frjálsar þjóðir. En þær hafa jafnframt reynt samvinnu tvær eða fleiri saman. Um skeið voru Norðmenn og íslendingar í stjórnmálasambandi. Síðan bættust Danir í þann hóp og loks Svíar líka. í Kalmarsambandinu komst stjórnmálasamvinna Norðurlanda á hæsta stigið, ef mið- að er við formið. En það stóð ekki lengi. Svíum þótti of þröngt um sig í þessari norrænu samvinnu, og slitu sig fyrst lausa. Síðan liðu nokkrar aldir. Þá kom að því 1814 að Norðmenn losnuðu úr tengslum við Dani, en voru nauðugir spyrtir saman við Svía. Stóð svo tæpa öld, þar til Norðmenn slitu algerlega sambandinu við Svía. Nokkr- um árum síðar, 1918, varð ísland sjálfstætt ríki, sem það hafði ekki verið síðan á 13. öld. Niðurstaða hinna norrænu þjóða hefir orðið sú, að þær vilja ekki hafa stjórnmálasamvinnu eins og Kalmar-sam- bandið eða eins og hið dansk-norsk-íslenska ríki Alden- borgarkonunganna. Islendingar hafa ákaflega rótgróna skoðun um það, hversu stjómmálasamvinnan við frændþjóðimar á um- liðnum öldum hefir verið þeirn óhagstæð. Meðan Is- land var sjálfstætt ríki í fornöld, í nálega fjórar aldir var efnahagur landsmanna góður, mentun þjóðarinnar á háu stigi, verslunin frjáls og í eðlilegum farvegi, og þjóðlífið þróttmikið og fjömgt. Á þessum tíma mynduðu íslend- ingar varanlegt andlegt verðmæti: Merkilegt stjómar- skipulag, sem átti vel við alla landshætti, tiltölulega full- komna löggjöf, og síðast en ekki síst bókmentir sem á

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.