Samvinnan - 01.06.1927, Page 67

Samvinnan - 01.06.1927, Page 67
SAMVINNAN 145 velg-jörðamanns norsku þjóðarinnar, og sá sem beinir þróun íslensku þjóðarinnar inn á hnignunarbrautina. Tíminn leyfir ekki að fleiri dæmi séu rakin, enda munu þessi nægja. Dómar sögunnar eru ótvíræðir um það, hverskonar samvinna hentar best Norðurlandaþjóðunum. Það er hið andlega samstarf milli frjálsra þjóða, frjálsra bæði stjórnarfarslega og í fjármálaefnum. Milli Norður- landaþjóða á að hefjast sú samvinna sem er framhald af starfi Snorra Sturlusonar, en varast þá samvinnu sem var uppistaða í „konungshugsun“ Hákonar gamla í skiftum við norrænar frændþjóðir. Eg vil að lokum taka fram fáein atriði viðvíkjandi framtíðarstarfi Islendinga við frændþjóðirnar í austur- átt, einkum við Noreg. Eg hefi sannað með ótvíræðum rökum, að þar getur ekki verið um að ræða stjórnmála- eða fjármálasamstarf í áframhaldi af aðgerðum Hákonar gamla eða Kristjáns fjórða. En fordæmi Snorra og annara af leiðtogum frá þjóðveldistímanum vísar aftur leiðina, sem stefna ber. Fom-íslendingar voru, eins og áður er sagt, þrá- sinnis á ferðum víðsvegar um Norðurlönd, einkum í Nor- egi. Án þessara sífeldu utanfara hefði hin glæsilega fom- aldannenning aldrei blómgast á Islandi. Vegna þess hve þjóðin var og er lítil, eru íslendingum nauðsynlegar mikl- ar utanferðir til að verða fyrir sífeldum áhrifum af lífi stærri þjóða. Og svo vill vel til, að Islendingar finna þetta sjálfir. Þeir voru í fomöld mjög fúsir til ferða utanland? og þeir eru það enn. Nú er Noregur það land, sem næst er íslandi og staðhættir skyldastir. Þá er og frændsemin mest milli Norðmanna og Islendinga. Saga landanna hefir og verið hliðstæð að því leyti að á eftir langvinnri hnign- un og kyrstöðu hefir komið endurreisnar- og framfara- öld. En Norðmenn fá sjálfstjóm og byrja viðreisn sína nálega einni öld á undan Islendingum. Þess vegna hafa ís- lendingar mikið að læra af Norðmönnum viðvíkjandi fjöl- mörgum framfömm, einkum í verklegum efnum. Og þó að Norðmenn séu hér einkum tilnefndir, þá nær hið sama 10

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.