Samvinnan - 01.06.1927, Side 79

Samvinnan - 01.06.1927, Side 79
SAMVINNAN 157 gefist það ágætlega. Heildsölur finskra, sænskra og norskra samvinnumanna fetá á eftir sömu slóð, en eru yngri og skemur á ~veg komnar. Árið 1914 framleiddu samvinnuheildsölur Breta og Skota iðnaðarvörur fyrir 228 miljónir kr. en einstök kaup- félög (hin stærstu) fyrir 280 miljónir, en það var þriðji hlutinn af veltu félaganna í Bretlandi það ár. Framförin er geysi mikil í þessum efnum, því að um aldamótin síð- ustu var framleiðsla allra ensku félaganna ekki nema þriðjungur við það, sem hún var orðin í byrjun stríðsins. Enginn vafi er á því, að í framtíðinni mun fram- leiðsla samvinnufélaganna vaxa hröðum fetum, ef dæma má eftir hinni stuttu reynslu, sem fengin er, og þar sem svo mikið hefir áunnist. En iðnaðurinn er ekki sjálfum sér nógur. Til að geta framleitt í verksmiðjum, þarf að hafa óunnin efni. Það bendir samvinnufélögunum á að þau þurfa líka að fá yfirráð yfir nokkru af náttúrugæð- um þeim, sem verður að nota, námum og landi.

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.