Samvinnan - 01.06.1927, Side 82

Samvinnan - 01.06.1927, Side 82
160 SAMVINNAN hirða hann. Aftur á móti er enginn vafi á, að torfvegg- irnir og torfþakið á að mörgu leyti einkar vel við skilyrð- in í snjóahéruðum landsins. Þá kemur næst bærinn á Böggversstöðum í Svarfað- ardal. Hann er bygður árið fyrir stríðið. Þá er stein- Böggversstaðir í Svarfaðardal. steypuöldin komin. Bærinn er tvílyftur með háu þaki. Neðri hæðin er úr steinsteypu, efri hæðin úr timbri, og jámþak á húsinu. En það sem er merkilegast við bæinn á Böggvers- stöðum er það, að þar er gerð ákveðin tilraun til að byggja hús úr steinsteypu og timbri í b æ j a s t í 1. Tvær háar bustir vita fram á hlaðið. Þær minna á hin gömlu þil. En mænirinn, sem tengir þær saman, er baðstofuþak- ið gamla. I Böggversstaðabænum eru frumdrættir að hinum nýja stíl, sem húsameistarar og listamenn eins og Ásgrímur Jónsson hafa nálega fullskapað á síðustu árum. Bærinn á Böggversstöðum snýr aðalhlið nálega móti suðri. Þess vegna má segja, að bændurnir sem því réðu, bræður hins ágæta manns, Guðjóns Baldvinssonar, hafi orðið í fararbroddi sinnar samtíðai, bæði um stíl bæjar- ins og viðhorf til sólar.

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.