Samvinnan - 01.06.1927, Blaðsíða 84
162
SAMVINNAN
Ef steinloft er yfir kjallaranum, og útidyr gegnum bak-
vegg, eru margskonar þægindi við þá tilhögun, en hvorki
óþrifnaður né óheilnæmi. I nýbygðu, vönduðu steinsteypu-
húsi á Varðgjá í Eyjafirði, er fjós í kjallaranum. Veldur.
það miklum hlýindum í íbúðinni. Gólfið jafnan hlýtt, eins
og væri miðstöðvarhitun, sem vermdi steininn. Fyrrum
var algengt að hafa fjós undir baðstofupalli, einkum í
frosta- og snjóahéruðunum. Það var sjálfsvöm fólksins í
eldiviðarlausu landi, móti kuldanum. En þá kunnu menn
ekki önnur ráð en að hafa timburgólf í baðstofunum, og
spilti fjósið þá að sjálfsögðu lofti í baðstofunni. En hús-
dýrin, torfveggimir og torfþökin, héldu hlýjum híbýlum
íslendinga öldum saman. Og það er enginn vafi á því, að
margir hinir hættulegustu sjúkdómar, sem nú herja land-
ið, einkum berklaveikin, stafa að miklu leyti af kuldanum
í lélegum stein- og timburhúsum*).
Vallanes er einhver fegursta jörð á Austurlandi. Bær-
inn stendur á austurbakka Lagarfljóts. Norður frá túninu
liggja víðáttumiklar grundir, hið besta engi. Er það alt
Vallanesland. í Vallanesi hefir um alllangt skeið búið
Magnús prestur Jónsson.Hann var athafnamaður í mörgu,
bygði þar steinhús mikið og fylgir hér mynd af því, og
öll peningshús úr steinsteypu. Sr. Magnús er hugkvæmur
maður um byggingar. Hefir hann ráðið mestu um bygg-
ingu steinbæjar á Mýrum í Skriðdal, þar sem íbúðarhús og
peningshús eru öll í einni byggingu. Að vísu mun það
byggingarlag tæplega koma til greina alment, en engu að
síður er sú hugmynd merkileg.
Vallaneshúsið stendur nálega fram við Lagarfljót,
og snýr aðalhlið móti suðri. Undir því er hár kjallari. Á
aðalhæð eru mörg herbergi og stór til íbúðar, en svefn-
herbergi góð á loftinu og kvistinum. Ef það yrði hugsjón
bænda, að reisa bæi sína nákvæmlega í sama stíl og kaup-
*) Guðjón Samúelsson húsameistari er þvi mjög fvlgjandi
að hafa fjós undir steingólfi í sveitabæjum, af ástæðum þeim,
sem hér eru tilgreindar. Ritstj.