Fréttablaðið - 29.08.2009, Side 40

Fréttablaðið - 29.08.2009, Side 40
6 matur Ömmubakstur ehf. Kársnesbraut 96a | 200 kópavogi | S: 545 7000 Veljum íslenskt gott í dagsins önn... Ömmu kleinur Ömmu spelt flatkökur Ömmu flatkökur Grænt salat úr garðinum. ÚR ELDHÚSI KRÚSKU VIÐ SUÐURLANDSBRAUT RAUÐRÓFUSALAT MEÐ SUNNUDAGSLÆRINU 3 rauðrófur rifnar fínt 1 grænt epli rifið saman við og blandað vel saman Handfylli af döðlum saxað út í Handfylli af saxaðri steinselju Safi úr einni appelsínu blandað saman við 2 msk. agavesírópi Skreytt með kókósflögum HVER VILL EKKI GULRÆTUR? 1/2 kg gulrætur 2 appelsínur skornar í þunnar sneiðar, látið safann fara með 1/2 msk. sítrónusafi 1 msk. lífræn ólífu- olía Smá salt 1/2 tsk. kanill 1/2 tsk. kummin Skreytt með ein- hverju grænu Rífið gulræturnar með ostaskera til að fá þunnar ræmur. Þeytið saman olíu og krydd og setjið saman við ásamt appelsínunum. GRÆNT SALAT ÚR GARÐ- INUM EÐA SVÖLUNUM 1 höfuð lambhagasalat rifið niður 2 stilkar af grænkáli sem er sneitt niður í þunna strimla Steinselja eins mikið og hver kýs Basil Kóríander Blandið öllu vel saman. Þeir sem eiga ber ættu endilega að skella þeim út í. KARTÖFLUSALAT Í SPORT- BÚNINGI 1 kg smælki Smásletta af olíu 1 grein ferskt timjan eða blóð- berg 1 bolli ólífur 1 bolli sólþurrkaðir tómatar Smá sletta af tamari-sósu Gróft salt Kartöflurnar bakaðar með timjan- inu í olíunni við 180°C í 16 mínútur. Ólífur, tómatar og tamari-sósa sett saman við og grófa saltinu stráð yfir áður en salatið er borið fram. RÓFUR FYRIR BÖRNIN 6 rófur skornar í fingurbreiða bita Smá olía Gróft salt Aioli-sósa eða tómatsósa Skerið rófurnar í fingurbreiða bita og skellið í ofninn með smá olíu yfir og bakið við 190°C í 12-15 mínútur. Þegar þær eru tilbúnar er ekkert eftir að gera en að strá grófu salti yfir og njóta sælunnar með aioli-sósu eða tómatsósu. GRÆNMETISRÉTTIR NÖNNU GRÆNMETISKLATTAR 3 egg 150 ml mjólk eða vatn 100 ml grísk jógúrt (má líka sleppa og nota meiri mjólk) Um 250 g hveiti 1 tsk. lyftiduft Salt Nýmalaður pipar 1/2 tsk paprikuduft E.t.v. söxuð basilíka eða aðrar kryddjurtir Egg, mjólk og jógúrt sett í skál og hrært saman. Mestöllu hveitinu blandað saman við ásamt lyftidufti og hrært þar til blandan er slétt; meira hveiti bætt við ef hún er frem- ur þunn. Kryddað með salti, pipar, paprikudufti og e.t.v. söxuðum kryddjurtum. Látið standa á meðan grænmetið er steikt. FYLLING Grænmeti eftir smekk, t.d. 150 g sveppir 1 paprika 100 g spergilkál (ekki stönglar) Nokkrir vorlaukar eða blaðlauk- ar 2 tómatar, vel þroskaðir 3-4 msk. olía og meira til steik- ingar Sveppirnir skornir í bita. Paprikan fræhreinsuð og skorin í litla bita og spergilkálskvistirnir skornir smátt ásamt vorlauk eða blað- lauk. Tómatarnir skornir í bita. Olían hituð á pönnu og sveppir, paprika, spergilkál og vorlaukur látið krauma í nokkrar mínútur. Tómötunum bætt á pönnuna og steikt í 2-3 mínútur í viðbót. Öllu hrært saman við deigið (olían á pönnunni látin fylgja með). Pann- an þerruð með eldhúspappír, olíu bætt á hana og síðan eru klattarnir steiktir, nokkrir í einu, í 2-3 mínútur á hvorri hlið. Teknir af pönnunni og haldið heitum á LÉTTIR RÉTTIR ÚR BRAKANDI FERSKU GRÆNMETI ÚR GARÐINUM Gulrætur að hætti Evu. A M Kartöflusalat í sportbúningi. Rófur sem líkjast frönskum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.