Andvari

Årgang

Andvari - 01.05.1967, Side 30

Andvari - 01.05.1967, Side 30
28 JÓN GÍSLASON ANDVARI bjóða velkominn læknaguðinn Askle- píos (sem var hetjuguð, þ. e. var í guða- dýrkuninni ávarpaður sem heros, ,,hetja“), þegar hann var fluttur (sennilega í líki heilagrar slöngu) frá Epídáros til Aþenu. Hann kemur einnig á annan hátt við hetjudýrkunina í Aþenu, t. a. m. við dýrkun hetjunnar Halons (sem annars er ekkert vitað um) og hetjunnar Idera- klesar. Að Sófokles látnum var hann sjálf- ur tignaður sem hetja í Aþenu undir nafn- inu Dexíon, sem þýðir „sá sem býður vel- kominn“, sbr. það, sem fyrr sagði um Sófokles og Asklepíos. Hefur helgistaður skáldhetjunnar fundizt í vesturhlíð Akro- polishæðar, eins og áletrun sýndi, sem jafnframt er sönnun þess, að dýrkun þessi hefur haldizt a. m. k. langt fram á 4. öld f. Kr. b. Vitað er, að Aiskýlos var nátengdur launhelgunum í Elevsis, enda var hann fæddur þar. Sófokles var fæddur 1 Kólo- nos í Attíku, þar sem var gröf hetjunnar Oidípúsar, sem skipar svo veglegan sess í skáldskap Sófoklear. Sannast því hér sem oftar hið fornkveðna, að lengi býr að fyrstu gerð. En tæplega er unnt að hugsa sér meiri andstæður en launhelgarnar og hetjudýrkunina, þó að báðar snerust þessar trúarstefnur um dauðann. Sá var munurinn, að launhelgarnar í Elevsis vöktu vonir um sæluríkt líf eftir dauð- ann, þar sem hins vegar dýrkun hetjunnar var bundin við sjálfa gröfina. Helgi- athafnirnar í Elevsis voru tilefni til fagnaðar: helgiganga, vígsla, opinberun, hugstola hrifning. Hetjudýrkunin skaut mönnum hins vegar skelk í bringu, trú- arlegur geigur og harmatölur fléttuðust saman. Blóðfórnin á gröfinni var veizla handa hetjunni, sem þar bjó. Elevsis var opinberun í dýrlegu ljósi. Hctjan var aðeins dýrkuð eftir sólarlag. Hetjur voru af næsta ólíkum uppruna. En eitt má þó telja sameiginlegt einkenni þeirra: Þær höfðu allar með einhverjum hætti sprengt af sér þær takmarkanir, sem venjulegir dauðlegir menn eru háðir. Idetjum var líka viðbrugðið fyrir skap- ofsa. Þetta voru langoftast reiðir menn, já, meira að segja fokreiðir. Og skap þeirra hélt áfram að ólga jafnvel í gröf- inni. Grafir þeirra voru helgir staðir. Var betra að vanrækja ekki á nokkurn hátt dýrkun þeirra, ef eigi átti verra af að hljótast. í lifanda lífi höfðu þessi afar- menni gefið dauðann og djöfulinn í allt og alla og hvergi hopað, hver sem í hlut átti, jafnvel þótt við guðina sjálfa væri að skipta. Vildu þeir heldur bíða hel en hopa um hársbreidd eða vægja fyrir óvinum sínum. Minnir skapferli þeirra mjög á anda Islendingasagna eins og hann kemur t. a. m. fram í vísu þeirri, er Gunnar á Hlíðarenda átti að hafa kveðið dauður í hauginum, og ekki síður í athugasemd Skarphéðins við hana: „Mikit er um fyrirburði slíka“, segir Skarphéðinn, „er hann sjálfr vitrask okkr, at hann vildi heldr deyja en vægja fyrir óvinum sínum, ok kenndi hann okkr þau / yeU rao . Dýrkun hetjanna miðaði þess vegna aðallega að því að milda skap þeirra. Sumar hetjur höfðu jafnvel fátt sér til ágætis annað en ofsann. Þær bjuggu yfir mikilli orku, sem engan veginn þurfti að vera í neinum tengslum við siðferði- legar hugmyndir eða guðstrú. Þessu til skýringar er lærdómsrík sagan af Kleomedesi frá Astýpalaia, sem bæði er að finna hjá Pásaníasi (VI, IX, 6—8) og Plútark (Rom. 28, 4—6). Kleomedes var afbragð annarra manna að íþróttum, en var svo ólánsamur að verða að bana andstæðingi sínum í hnefa- leikakeppni á Ólympíuleikunum. Var hann sekur fundinn af dómurunum um ranglætisverk, og dæmdu þeir af honum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.