Andvari - 01.01.1977, Qupperneq 60
58
GUÐMUNDUR DANÍELSSON
ANDVARI
ekki að vænta. Kom þar einkum tvennt til: ólíkar lífsskoðanir og and-
stæð sjónarmið á vinnuaðferðum. Hann sagði oft við mig: „Mundu
það, að þau verk, sem hljóta allra lof, eru sjaldan stór, og ég hef enga
trú á því verki, sem enginn finnur að.“
Kristmann Guðmundsson skáld: „Faskaldur gat hann verið og harður
á stundum, en það var glettnisbros með kuldanum og mýkt í hörkunni.
Heiðríkt var jafnan yfir svip hans, þó að skjótt gæti brugðið til storma
og jafnvel þrumuveðurs, ef vegið var að hugstæðum áhugamálum hans.
Hið hjarta svipmót hans bar hugarfarinu vitni. Hann var karlmenni í þess
orðs beztu merkingu, dýrmætur vinur sínum og dáður af konum. Egill
Thorarensen kunni forkunnarvel skil á bókmenntum og listum."
Jörundur Brynjólfsson fyrrverandi alþingismaður:
,,Þá mættu Selfossbúar minnast fyrstu ára Egils í sambandi við jarð-
hitavirkjanir í Laugardælum og gildi þeirra.
Egill tók iðulega bifreið sína, ók að Laugardælum, tók þátt í hú-
verkum og hafði hið mesta yndi af.“
Þorsteinn Sigurðsson bóndi Vatnsleysu:
„Viljastyrkur og karlmennska Egils Gr. Thorarensens var frábær.
Kom það ekki einungis fram í athöfnum hans, en engu síður í baráttu
hans við sjúldeika sinn mestan hluta ævinnar. Hann gat leikið á als-
oddi með vinurn sínum, þó að brandur dauðans stæði í hrjósti hans. Og
enginn gat kosið sér skemmtilegri og betri félaga en hann.“
Jón Olafsson skrifstofustjóri K.A., nú bankaútibússtjóri í Vík:
„Þess munu fá dæmi, að stjórnandi svo fjölmenns starfshóps, á fjórða
hundrað manns, hafi átt jafn almennum vinsældum að fagna hjá starfs-
mönnum sínum og Egill Thorarensen hjá starfsfólki Kaupfélags Árnesinga.
Starfsfólk Kaupfélags Árnesinga kveður því í dag ekki aðeins hinn
framsýna og stórhuga forustumenn samvinnusamtaka Sunnlendinga síð-
ustu þrjá áratugina, heldur öllu fremur dáðan húsbónda og starfsfélaga.
Það geymir, meðal svo ótal margs annars, minningu um mann, sem
átti slíkan persónuleika, að daglegt fas hans, jafnt á vinnustað sem ann-