Andvari - 01.01.1986, Blaðsíða 17
ANDVARI
GUNNAR THORODDSEN
15
arskrárnefndum Alþingis 1945, 1947, 1972 og var formaður þeirrar
stjórnarskrárnefndar er Alþingi kaus 1978. Formaður íslandsdeild-
ar þingmannasambands Norðurlanda 1945-57 og formaður ís-
landsdeildar Alþjóðaþingmannasambandsins 1951—1965. Formaður
Norræna félagsins var hann 1954—1965 og aftur 1970 til 1975. For-
maður blaðaútgáfunnar Vísis var hann 1960-1965. Eru þá ótalin
fjölmörg önnur trúnaðarstörf, m. a. á vegum Reykjavíkurborgar,
störf í milliþinganefndum og gerðardómum.
Gunnar kvæntist þann 4. apríl 1941 Völu, dóttur Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, síðar forseta íslands, og Dóru Þórhallsdóttur. Þeim Gunnari
og Völu varð fjögurra barna auðið. Þau eru Ásgeir héraðsdómslög-
maður f. 1942, Sigurður lögfræðingur í Seðlabanka íslands f. 1944,
Dóra bókasafnsfræðingur f. 1948 og María Kristín kennari f. 1954.
4
Stjórnmálaferill Gunnars Thoroddsen spannaði hálfa öld. Á þeim
tíma áttu sér stað meiri breytingar á lífí og högum þjóðarinnar en
orðið höfðu á öllum þeim öldum sem á undan voru gengnar. Braut-
iri var vörðuð frá fullveldi til lýðveldis og bylting átti sér stað í at-
vinnuháttum og afkomu landsmanna bæði til sjávar og sveita.
Það varð hlutskipti Gunnars, ásamt öðrum foringjum þjóðarinn-
ar á þessu tímabili, að móta þessi aldahvörf eftir bestu getu og marka
þá stefnu sem þeir hugðu farsælasta á hverri stund. Oft var það
heillandi viðfangsefni en jafnframt örðugt og vanþakklátt, því allt
orkar tvímælis þá gert er. Fram til fullveldisins 1918 hafði þjóðin öll
keppt að einu marki. Eftir lýðveldisstofnunina urðu verkefni þjóð-
málanna önnur, hversdagslegri en að mörgu leyti erfiðari. Þá var
kallað eftir svari við þeirri kjarnaspurningu hvernig þjóðin og
leiðtogar hennar hygðust nota hið nýfengna sjálfstæði til þess að
skapa réttlátt þjóðfélag á íslandi sem tryggði öllum þegnum landsins
mannsæmandi kjör. Svarið við því hvernig þar hefur verið að verki
staðið verður raunar aðeins fundið í dómi sögunnar og enn mun
eflaust nokkur tími líða þar til hann verður kveðinn upp.
Af þeim mörgu málum sem Gunnar Thoroddsen beitti sér fyrir í