Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1986, Blaðsíða 169

Andvari - 01.01.1986, Blaðsíða 169
ANDVARI „PAÐ LÝSTI OFT AF HONUM . . “ 167 Fordæmingin hljóðar svo, orðrétt: „Nafnið veira hefur líka verið notað á þennan lífveruflokk í íslenzku máli, en það virðist ekkert hafa fram yfir orðið vírus nema tilgerðina. Orðið vírus fer vel í málinu og beygist eins og prímus." Þetta var tilefnið. Og nú tekur Vilmundur upp rækilega vörn fyrir veir- una. Aftarlega í greininni kemst hann svo að orði: Enda þótt sú nafngift, að vírus heiti á íslenzku veira, kunni nú að þykja hafa nokkuð til síns máls, fer því íjarri, að unnt sé að ætlast til, að hún falli í hvers manns smekk. Allra sízt er nokkur von til þess, að hún geðjist þeim vandlátu mönnum, sem gæddir eru hinum dlgerðarlausa prímussmekk fyrir tungu feðra sinna og mæðra. Auðvitað deili ég ekki á þann smekk fremur en annan smekk, og verður hver maður að hafa sinn smekk. En víst leyfist mér að velta þessu smekksmáli lítið eitt fyrir mér og íhuga, hve miklu tilgerðarlausari íslenzk tunga hefði mátt verða, ef hann hefði fengið að njóta sín betur á liðnum tímum en raun ber vitni. Fyrir rúmum hundrað árum, svo að ekki sé litið lengra aftur í tímann, baslaði Jónas Hallgrímsson náttúrfræðingur og skáld við að þýða stjörnufræði á ís- lenzku. Hann felldi sig einhvern veginn ekki rétt vel við, að æter héti á íslenzku blátt áfram eter, og nefndi ljósvaka, sem virðist ekkert hafa fram yfir orðið eter nema dlgerðina. Orðið eter fer vel í málinu beygist eins og barómeter. Æðilöngu síðar hugkvæmdist Sigurði L. Jónassyni stjórnarráðsritara að nefna terrítoríum landhelgi, sem virðist ekkert hafa fram yfir orðið terrítoríum nema tilgerðina. Orðið terrítoríum fer vel í málinu og beygist eins og sammensúrrí- um. Um líkt leyti rak dr. Jón Þorkelsson rektor hornin í exemplar og kallaði ein- tak, sem virðist ekkert hafa fram yfir orðið exemplar nema dlgerðina. Orðið ex- emplar fer vel í málinu og beygist eins og ektapar. Enn var það ekki fjarri þessum tíma, að Arnljótur Ólafsson, síðar prestur, samdi Auðfræði sína og smíðaði ijölda nýyrða. Ekki bar hann beskyn á að kalla begreb einfaldlega begrip, heldur kaus hann nýyrðið hugtak, sem virðist ekkert hafa fram yfir orðið begrip nema dlgerðina. Orðið begrip fer vel í málinu og beygist eins og beskyn og bevís. Um og efdr síðustu aldamót seldu allir skókaupmenn hér á landi og auglýstu ákaft galossíur. Þorsteinn Erlingsson skáld fann upp á því, einhvern tíma þegar honum gekk illa að komast í galossíurnar, að kalla þennan nýja fótabúnað skó- hlífar, sem virðist ekkert hafa fram yfir orðið galossíur nema tilgerðina. Orðið galossía fer vel í málinu og beygist eins og drossía. Á sama tíma voru centrífúgur auglýstar því nær í hverju íslenzku blaði, unz Jón Ólafsson ritstjóri og skáld, nema það hafi verið einhver annar, gat ekki setið á sér og stakk upp á að kalla þetta þarfa áhald bænda skilvindu, sem virðist ekk- ert hafa fram yfir orðið centrífúga nema tilgerðina. Orðið centrífúga fer vel í málinu og beygist eins og Good-Templarastúka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.