Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1957, Page 11

Andvari - 01.01.1957, Page 11
andvari Pálmi Hannesson rektor 7 hraustar hendur, og hefði legið nærri, að hann svipti sér a'f baki. En aldrei vissi Pétur nein deili á 'honum. Vor eitt, 'þegar Pétur var í Valadal, fór hann norður á Bögg- versstaðasand í Svarfaðardal til fisikikaupa. Með honum var Jón nokkur Símonarson, frændi hans, mi'kill maður vexti, karhnenni og glíminn vel, Gekk þeiim greiðlega ferðin norður og varð gott til haupanna. I þann mund var glímufundur háldinn á Böggversstöð- urn, og komu þeir Pétur þar. Voru þeir beðnir að slá í glímuna sem aðrir, en Pétur kvaðst lítið kunna til þeirrar íþróttar og 'færðist undan, en hinir sóttu því fastar á, og lét hann þá til leiðast. Var svo látinn fram á móti honum sá, er minnstur þótti 'fyrir sér. Glímdu þeir lengi, svo að hvorugur vann á öðrum, og hlógu menn mjög. Efirn síðir slysaði PétuT þó mótstöðumanninn niður. Var þá annar fenginn til og sá þriðji. Lagði Pétur þá báða, og stóðust þeir eigi alHengi. Segir nú ekki af viðureigninni fyrr en Pétur hafði lagt þar ellefu. Gekk þá 'fram sá tólfti, hár rnaður og þrékinn, en gleyrnt er, hvað ihann hét. Jón bað Pétur að lofa sér að glíma við þennan mann, en Pétur vildi það ekki, annaðhvort af metnaði eða kappi. Glimdu þeir nú lengi, því að 'báðir voru rammir að afli og glímnir, en að Idkum hóf þó Pétur hinn upp á klofbragði og slengdi 'honum a völlinn. Maðurinn stóð á fætur, gékk til þeirra Péturs og bauð þeim veitingar. Þekktust þeir það og skildu sem vinir. Sagði Jón svo frá, að ilengi hefði hann eigi vitað, hvor bera mundu hærra hlut 1 glímunni, enda var Pétur orðinn móður éftir hinar fyrri glímur. Eftir að Pétur var farinn að búa í Valadal, lagði hann a'f suður- ferðir, en gerðist brátt umsvifamikill um búskapinn. Leið eigi á löngu, áður en hann hafði fjárbú eitt hið rnesta í Slkagafirði. . . . Þótti Eétur með merkari bændum, en htt lét 'hann þó sveitarmál eða héraþs til sín taka og gaf sig ekki að deilum rnanna. . . . Ta'linn Var 'hann hjálpfús og 'hollráður þeim, er til hans leituðu, og manna Vlnsælastur. . . . Kona hans, Jórunn Hannesdóttir frá Hömrum Var kölluð valkvendi, og unnu henni allir þeir, er til þekktu. Mátti syo að orði kveða, að hún væri höfuðprýði bónda síns, og unnust tau hugástum."

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.