Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1957, Side 36

Andvari - 01.01.1957, Side 36
32 J. Eyþórsson ANDVARI Þá játningu vil ég gera hér, að í öndverðu 'hugðist ég ek'ki leggja fyrir mig kennslu nema þá að öðrum þræði og því síður skólastiórn. En atvi'kin, sem öllu ráða, leiddu mig á þessa braut. Síðan hef ég einatt saknað þess að geta ek'ki sinnt hugðarefnum mínum hinum fyrri svo sem ég hefði viljað. En ég hef a'ldrei um það sakazt, og nú lýk ég þessum ]ítilfjörlegu reikningsskilum með orðum Þorgeirs í Vík: Mikið ég fékk fyrir mikið sár. Mááke fer hezt eins og sökin stár. Og guð, þér sé þölkk fyrir allt. Þegar ég stóð hér fyrir 25 árum iflutti ég ávarp, sem síðar var haft í skimpingum af sumum og kallað sannleiksleitarræða rektors- ins. . . . Ræðunni 'lauík ég með svöfelldum orðum: Svo kveð ég yður til starfs og drengilegrar athafnar. — Gangið fram og hlúið að hverju lífgrasi, sem grær við götu yðar, — en umfram allt — leitið sann- leikans. Með þessum orðum ávarpa ég yður enn, nemendur. Með þeim ávarpa ég enn alla nemendur mina fjær og nær. . . .“ Þegar Pálmi rektor flutti þessa ræðu haustið 1954, liafði hann átt við vanlíðan og vanheilsu aS stríða í þrjú undanfarin ár. Var það æðakölkun og of mikill blóðþrýstingur, sem þjáðu hann. Veturinn 1953/54 var hann langdvölum í Kaupmannahöfn undir læknis liendi. Gerði hinn víðfrægi danski læknir, dr. E. Buscb vandasama skurðaðgerð á Pálma, og bætti hún svo stórlega heilsu hans, að hann tók við skólastjórn og lióf kennslu í Menntaskol- anum haustið 1954. Þegar hann flutti ræðu sína, þá er framan getur, hefur hann efalaust haft sterkan grun um, að hann aetti ekki mörg ár eftir. En lítt lét hann slíkt á sér finna, og er eg þess fullviss, að hann hafi einsett sér að halda velli, meðan kraftar entust, Og vel mundi hann stef Egils:

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.