Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1957, Page 44

Andvari - 01.01.1957, Page 44
40 Sigurður Þórarinsson ANDVARI sem nú er verið að grafa fram nærri Hofi, svo að einnig með þessu móti verður niðurstaðan sú, að bæjatalan hafi verið nær 30. Með hjálp örnefna, lýsinga fsleifs sýslumanns Einarssonar frá fyrsta tug 18. aldar á eyddum bæjum í Öræfum og út frá núverandi rekafjörunöfnum og fjörumörkum er hægt að stað- setja með nokkru öryggi 14 eða 15 af bæjunum. Meðal þeirra eru kirkjustaðurinn Jökulfell, nærri núverandi Bæjarstaðarskógi og Idólar undir Staðarfelli austan við Hólárjökul, en þar telja sumir að verið hafi kirkja í fyrstu kristni. Eyrarhorn hlýtur að hafa verið einhvers staðar á leirunum norður af Ingólfshöfða þar sem Skeiðará veltur nú fram. Var þar einnig kirkja, eða a. m. k. hálfkirkja, á 14. öld. Fleira er ei rúm hér að nefna. En ekki munu þær mjög ýktar síðari alda sagnirnar um það, að í Eléraði liafi verið 40 bæir. Ætla mætti, að í sveit með sextán eða sautján guðshúsum væri þeir réttlátu eigi færri að tölu, en hafi svo verið, hefur Jahve verið strangari dómari þeim Héraðsmönnum en hann var Sódómuhúum forðurn, því skömmu síðar en máldagar þeir voru skráðir er ég hefi nú rætt, dundu yfir hina blómlegu byggð þau ósköp, er vel mega jalnast við það er Jahve lét rigna eldi og brennisteini yfir áðurnefnda borg. Idinn hávi jökull, sem í aldaraðir hafði þrumáð að haki Eléraðs milli sanda og veitt býl- um Jress skjól, skipti nú skyndilega um ham. í annálsbroti, sem kennt er við Skálholt, en skráð mun vera á Norðurlandi, og telja má nærri samtímaheimild, segir um árið 1362: „Eldar uppi í þrern stöðum fyrir sunnan og hélzt það frá fardögum til hausts með svo miklum býsnum, að eyddi allt Litlahérað og rnikið af Hornafirði og Lónshverfi, svo að eyddi 5 þingmannaleiðir. Elér með hljóp Knappafellsjökull frarn í sjo, þar sem áður var jirítugt djúp, með grjótfalli, aur og saur, að þar urðu síðan sléttir sandar. Tók og af tvær kirkjusóknir með öllu, að Hofi og Rauðalæk. Sandurinn tók í miðjan legg á sléttu, en rak saman í skafla, svo að varla sá húsin. Öskufall bar norður um land svo að sporrækt var. Það fylgdt

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.