Andvari - 01.01.1957, Síða 46
42
Sigurður Þórarinsson
ANDVARI
í Flosahelli — liann er upp í íjallinu fyrir austan Svínafell —
og þá hafi hinn þriðji brestur komið í hér sagða jökla, og þeir
sprungið svo í sundur, og hleypt svo miklu vatni og grjóti úr
sér, iram úr hverju gili, að allt fólk og gripir hafi farizt urn öll
Oræfi, utan þessi smali og einn hestur blesóttur. En um sumarið,
þá þingmenn úr Austfjörðum áformuðu til Alþingis, hafi þessi
hestur staðið á einum kletti fyrir austan Fagurhólsmýri, og steypzt
þar ofan fyrir, þá þeir vildu höndla hann, og síðan hafi þessi
klettur verið kallaður Blesaklettur og svo heitir hann enn í dag.“
Flvaða ályktanir getum við nú dregið af hér greindum heim-
ildum? Athugum fyrst tímasetninguna. Annálum ber þar ekki
vel saman og einn annáll, Gottskálksannáll, nefnir raunar tvö
gos í Knappafellsjökli á 14. öld, hið fyrra 1332. Tekur Þorvaldur
Thoroddsen það upp í eldfjallasögu sína og Jón Þorkelsson
telur, að í hlaupi samfara fyrra gosinu hafi Svínafell af tekið.
En ég held mér sé óhætt að lullyrða, bæði út frá annálum og
þó einkum út frá öskulagarannsóknum, að Knappafellsjökull hafi
aðeins gosið einu gosi á 14. öld, því gosi, er eyddi Hérað. Það
gos ber þess öll merlci að vera það, sem eldljallafræðingar nefna
initial- eða upphafsgos, en slík gos koma eftir aldalöng goshlé.
Slíkt gos var það, er eyddi Pompeji árið 79, og slíkt gos var það,
sem eyddi Þjórsárdal 1104. Og gos það, sem eyddi Hérað milli
sanda, er hægt að tímasetja með nokkurn veginn vissu. Það
hefur vart verið fyrir 1362, því þá væri þess getið í annál séra
Einars Flafliðasonar (Lögmannsannál), sem varðveittur er í eigin-
handarhandriti fram undir lok ársins 1361. Enn kemur það til,
að öruggt má telja, að gosið hafi verið fyrir dauða Þórarins SkáT
holtsbiskups Sigurðarsonar. í máldaga Stafafellskirkju í Lóni t
Vilchinsmáldögum segir: „Item lagðist þangað frá Flnappavallar-
kirkju eftir skipan herra Þórarins biskups 6 kúgildi og kúgildis-
hross, 200 í fríðu, kross stór, kaleikur og skrúði slíkur, sem þar
er, klukkur tvær frá Breiðá og kross.“ Annálum ber saman urn
að Þórarinn biskup hafi látizt tveim árum eftir gosið í Knappa'