Andvari - 01.01.1957, Qupperneq 50
46
Sigurður Þórarinsson
ANDVARI
viðurkenna, að náttúruöflin geti átt algerum sigri að fagna í
baráttunni við mannlífið. Og svo virðist, sem í þetta blandist
einnig sú reynsla, að í slíkum hamförum eigi böfðinginn sér
eigi fremur bjargar von en smælinginn, nema síður sé. Hið
vinnandi fólk er í nánari tengslum við náttúruna og hlýðir frekar
aðvarandi rödd hennar.
Með tilliti til þess, að kirkjan á Rauðalæk stóð af sér blaupið,
er sú frásögn Jóns Egilssonar, að prestur og djákn hafi bjargazt,
ekki ósennileg. En hvað um aðra Héraðsbúa? Við skulum reyna
að gera okkur grein fyrir því, hvað hugsanlega gæti hafa orðið
þeirn að aldurtila. Styðst ég þar m. a. við það, sem vitað er um
svipuð stórgos í öðrum löndum, svo sem öskugosið mikla í
St. Maria í Guatemala 1902 og fleiri.
Fyrst er að nefna jökulhlaupið. Telja má öruggt, að það
hafi sópað burt einhverjum bæjum, einkurn í nágrenni Rauða-
lækjar og Sandfells, svo og suður af Svínafelli, og að þarmcð
hafi allmargt fólk týnt lífi sínu. En jafnvíst er, að margir bæir
munu hafa verið þannig í sveit settir, að hlaupið gat ekki náð
til þeirra. Byrjun gosa fylgja oft snarpir jarðskjálftar og ekki er
ólíklegt, að þvílíku megingosi sem þessu hafi fylgt þeir kippir,
að einhverjir bæir liafi hrunið og manntjón jafnvel af orðið.
Með reynslu af mestu jarðskjálftunum hérlendis á síðari öld-
um er þó ekki hklegt, að margir hafi farizt í Héraði af þessum
völdum. Meiri líkur eru fyrir því, að vikur- og öskufallið hafi
orðið einhverjum að aldurtila. Líldegt má telja, að bæði menn
og skepnur, er úti voru, og áttu nokkra leið til bæja, hafi getað
lamizt til dauðs af grjótkasti og vikurfalli. Skammt norður af Hori
hefi ég séð vikurköggul rneira en hálfan metra í þvermál, og
gcfur það nokkra hugmynd um hvernig verið hefur að dvelja
utan dyra þegar þetta gos var í algleymingi, en það er min
ætlan, að mestu af vikrinum hafi niður rignt á einurn sólarhring
eða svo. Vel má vera, að vikurinn hafi verið heitur, og hefm'
það ekki bætt úr. Enn er sá möguleiki fyrir hendi, að svo mikið
hafi verið um fíngert öskuryk, að fólk hafi blátt áfram kafnað.