Andvari - 01.01.1957, Qupperneq 68
64
Þorkell Jóhannesson
ANDVAM
í þeirra hópi, sem margir voru allvel efnum búnir, virðast reyndar
hafa haft nokkur tök á því að kaupa vörur sínar ytra, en vöru-
þörf svo fárra manna var ekki svo mildl, að það tæki því að
senda skip til íslands, til þess að skipta við þá eina. Því var til
ráða tekið að færa út kvíarnar og ráða framkvæmdastjóra, Sigfús
Eymundsson. Fyrsta verk Sigfúsar var að ferðast um Borgar-
fjörð og Mýrar, allt vestur í Dali, og fá bændur í héruðum þess-
um inn í samtökin. Með líkum hætti var svo unnið að því að
safna viðskiptamönnum við sunnanverðan Faxaflóa. Gekk þetta
allt greiðlega. Sigfús lagði af stað í utanför sína 10. apríl 1870
„til vörukaupa að sögn og vöruútvegunar með lausakaupmönnum
norður og vestur fyrir hin ýmsu verzlunarfélög, er þeir nú í
vetur hafa verið að reyna að koma þar á fót; en vörukaup og
útvegun mun hann helzt hafa haft á hendi fyrir verzlunarbænda-
félag það, er myndaðist hér um Seltjarnarnes þegar í fyrra og gjörði
þá þegar eigi óálitlega vörupöntun og vörukaup frá Kaupmanna-
höfn, eigi fleiri menn en þá voru“ — segir í Þjóðólfi 16. apr.
1870. Hinn 22. júní s. á. skýrir Þjóðólfur frá því samkvæmt
fregnum frá Sigfúsi, að þess megi vænta, að öll félögin fái allar
þær vörur, er þau hafi pantað, og skuli þau nú hafa gjaldvöru
sína til taks. Er það haft fyrir satt, að kaupmenn í Bergen hafi
stofnað félag með 140 þús. spesíudala norskra höfuðstól, eða 280
þús. rd., til að korna þessari verzlun í gang. Hér varð reyndar
hið á, en 1. okt. kom Sigfús með gufuskipinu Thor frá Bergen
með fullfermi af vörum til Reykjavíkur, Idafnarfjarðar og Stykkis-
hóhns. Settist Sigfús að með verzlun sína vegna félags Seltirn-
inga í húsinu Liverpool, þar sem áður hafði verzlað Sveinbjörn
Jakobsen (1867—1868).
Eins og fyrr var sagt, skortir gögn um nánari tildrög að verzl-
unarsamtökum þeim, sem hér hefir stuttlega verið drepið á. En
óneitanlega er gaman að athuga nánara umbrot þau sem verða
í verzlun landsmanna 1869—1870. Áður var drepið á, að Myra'
mcnn áttu þátt í samtökum þessum. En á Mýrum vestur bar
það til tíðinda veturinn 1870, 28.-29. marz, að þar strandaði