Andvari - 01.01.1957, Qupperneq 72
68
Þorkell Jóhannesson
ANDVABI
við íslenzka menn, en sjálfur hafði hann eignazt góða aðstöðu
til hvors tveggja í Hafnarfirði. Eigi er kunnugt um bréfaskipti
þeirra Þorsteins um mál þetta, en í marzlok 1870 ritar Krohn
Jóni Sigurðssyni af þessu tilefni. Hefir hann nú hugsað málið
og rætt um það við kaupmenn í Björgvin, en eigi var þó enn
niðurstaða fengin af þeim viðræðum. Hugmynd Krohns var sú,
að efnt yrði til hlutafélags á íslandi í því augnamiði að reka
verzlun við Noreg. Þegar slík samtök væri stolnuð, yrði maður
sendur til Björgvinjar, vel kunnugur öllu, er varðaði íslands-
verzlunina, sem gefið gæti upplýsingar um allt, er máli skipti
um þessi efni. Jafnframt yrði safnað hlutafé handa félagi þessu
í Björgvin, eftir því sem þurfa þætti. M. a. taldi Krohn, að
félagið þyrfti að eignast gufuskip til vöruflutninga milli landa.
Tillögur þessar urn félagsstofnun Islendinga og Norðmanna sendi
Krohn einnig Þorsteini Egilssyni.
Þess var fyrr getið, að 10. apríl 1869 lagði erindreki verzl-
unarsamtakanna á suðvesturlandi, Sigfús Eymundsson, af stað til
Kaupmannahafnar með póstskipinu Diana. Með þessu sama
skipi fór Þorsteinn Egilsson utan. Óvíst er, hvort Þorsteinn hefir
þá verið húinn að fá bréf Krohns, sem fyrr var að vikið. Hitt
er víst, að þegar til Kaupmannahafnar kom og þeir félagar hittu
Jón Sigurðsson, hefir málið jafnskjótt á górna borið og varð þegar
að ráði, að þeir Sigfús héldi för sinni áfram til Björgvinjar.
Reyndar höfðu þeir ekkert fé fram að leggja, en liins vegar
hafði Sigfús allsterk samtök hak við sig og bauð að tryggja all-
mikil viðskipti á íslandi, ef félag yrði stofnað. Þótti nú vænlega
horfa og í síðara hluta maí tókst Krohn að stofna hlutafélag,
Det islandske Handelssamlag í Björgvin, en markmið félagsins var
að reka verzlun og fiskveiðar við ísland, ýmist beint frá bæki-
stöðvum félagsins í Noregi eða í samstarfi við íslenzka kaup'
rnenn og verzlunarfélög. Hlutaféð var ákveðið 12000 speciudalir
en gert ráð fyrir, að Islendingar gæti gerzt lduthafar og maetti
þá auka lilutaféð um allt að 5000 speciudali. Félagið skyldi hafa
aðsetur í Björgvin. Var nú ráðið, að samtök þau á íslandi, er