Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1957, Page 98

Andvari - 01.01.1957, Page 98
94 Björn Jakobsson ANDVARI lionum voru gerðar dásamlegar marmaramyndir. En jafnan var höfuð hans heldur í minna lagi. Ég geri ekki ráð fyrir því, að íslendingar taki hann til fyrirmyndar, enda þarfleysa. Það er eðlilegt og sjálfsagt að búa þannig að börnum og unglingum í skólurn, að hæfileikar þeirra fái að dafna og list- rænar gáfur verði ekki útundan. Ollum börnum sé kenndur nótnalestur, söngur og hljóðfærasláttur, eftir því sem geta þeirra leyfir. Þeirn sé kennt að hreyfa sig eftir hrynjandi lags. Þau læra smárn saman að skynja efni þess og birta það í listrænum hreyfingum. Allar námsgreinir skóla hafa fullan rétt til jafns við aðrar. Þetta verða allir kennarar að skilja, og kunna aS meta þær, þótt þeir kenni þær ekki sjálfir. Laginn kennari gerir hvaða nám sem er að hugþekku, hrífandi starfi. Nauðsynlegt er, að nám sé fjölbreytt og aðlaðandi, svo nem- endur gefi sig að því með heilum hug. Það sama á við tóm- stundastörf þeirra. Því fer vel að velja þau, sem ekki eru kennd í skóla, t. d. aðrar íþróttir. Togstreita kennara um tómstundir nemenda, sér til handa, er óhafandi. Heimili og skólar annast uppeldi æskunnar. Einn meginþáttur þess er íþróttir. Mætti verja til þeirra einni stund daglega og rúmum tírna til baða. Stefnt sé að því, að hér vaxi upp heilbrigð og starfsöm |yjóð, lífsglöð og góðum gáfum gædd. Hver og einn leysi störf sín svo vel af höndum sem kostur er. Lánist þetta, mun vel fara. E f n i . Pálmi Hannesson rektor, eftir J. Eyþórsson (með mynd) ................ 3—-34 Hérað milli sanda og eyðing þess, eftir Sigurð Þórarinsson ........... 35—47 Brot úr verzlunarsögu, eftir Þorkel Jóhannesson....................... 48—81 Þáttur um skipsströnd í Skaftafellssýslu, eftir Gísla Sveinsson....... 82—91 Um íþróttir í skólum, eftir Björn Jakobsson .......................... 92—94

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.