Andvari - 01.01.1951, Side 26
22
Guðmundur Gíslason Hagalín
ANDVARI
kynnti hann löndum sínum margar nýjungar. Hann mat gamla
hluti og venjur eftir gildi þeirra, og svo var og um það nýja. Ef
honum virtist það til aukinnar fegurðar og æskilegrar fjölbreytni
í ríki íslenzks gróanda, tók hann því tveim höndum, en snerist
öndverður gegn öllu, sem honum virtist sjúklegt, stríða gegn
lögmálum heilbrigði og fegurðar og vera líklegt til að sýkja
eða lýta.
Guðmundur Finnbogason var samur sem maður og rithöf-
undur, og þó að ég viti, að á fleiri en einu og fleiri en tveimur
sviðum íslenzks menningarlífs hafi hann haft mikil og heillavæn-
leg áhrif, þá er það trúa mín, að þá er þjóðin hefur áttað sig
eftir vímu stríðsgróða og heillun erlendra og innlendra særinga-
manna og seiðskratta, sem nú um hana villa, þá muni verða
snúið meira inn á þær brautir, sem Guðmundur taldi heillavæn-
legar, og safnað úr ritum hans heilræðum og spakmælum og þau
gefin út, því að þá muni æskan snúa sér að því af alvöru og
kappi ,,að smíða sólina, er leiði dag yfir landið", og sjái, að
„efnið í þá sól er hæfileikar þjóðarinnar."