Andvari - 01.01.1951, Side 32
28
Barði Guðmundsson
ANDVARI
lengur talað urn það sem hugboð, að ÞórSur úr Saurbæ bafi
ritað Ljósvetninga sögu. Hæfir nú betur í þessu efni að nelna
sterkan grun og miklar líkur.
XV. FÉRÁNSDÓMAR.
Höskuldur Þorvarðsson og Snorri Sturluson eru báðir kynntir
með einkunnarorðunum „uppvöðslumaður mikill". Þegar þeir
svo jafnframt eru bomir saman við feður sína og taldir „óskap-
líkir þeim“, er varla um það að villast, að við einn og sama
mann sé átt. Snorri Sturluson var fæddur í marzmánuði 1244.
Átján vetra gamall réðst hann brott úr föðurgarði og gerði bú á
Álftanesi á Mýmm. Þá bjó að Stafholti Hrafn Oddsson. Var
hann stórum valdamestur höfðingja í Vestfirðingafjóðungi. Árið
1261 bafði Hákon konungur Hákonarson skipað honum Borgar-
fjörð til yfirráða, en auk þess átti Hrafn mannaforræði í Dölum
og um Vestfirði. Þá er Snorri, haustiÖ 1262, settist að í Borgar-
firði, virðist Hrafn hafa fariÖ með meiri hluta goðorða á Vestur-
landi. Aðrir goðorðsmenn þar vom Einar Þorvaldsson í Vatns-
firði, Sturla Þórðarson að StaÖarhóli, Vigfús Gunnsteinsson að
Sauðafelli og GuÖmundur Böðvarsson á Stað á Snæfellsnesi.
Voru þeir Einar og Guðmundur bandamenn Hrafns. Hafa þessir
þrír höfðingjar þá ráðið að mestu eða öllu yfir sveitum milli
Hvammsfjarðar og Hvalfjarðar, auk meginhluta Vestfjarðakjálk-
ans.
Þannig var valdaskipting vestan lands er Snorri Sturluson
hóf búskap á Álftanesi og jafnframt ýfingar þar í byggð. Um
viðskipti þeirra Hrafns er komizt svo að orði í Sturlu þætti: „Snorri
reið um haustið suður til Borgarfjarðar á Álftanes að Hauki og
tók þar við búi. Hafði hann heldur fjölménnt um veturinn, og
þóttu þeir eigi spakir í héraði. Lagði Hrafn hinn mesta óþokka
á Snorra og því urðu þeir allóvinsælir af héraðsmönnum. Kom
því svo, að Snorra þótti eigi við vært. Stukku þeir þá upp. Fór
Snorri þá fyrst norður til föður síns. Var þá fullur fjandskapur
með þeim Sturlu og Hrafni. LTm veturinn er á leið fundust