Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1951, Page 55

Andvari - 01.01.1951, Page 55
ANDVARI Gervinöfn í Ölkofra þættj 51 lluttist þá búferlum að Skipaholti í Árnesþingi. Nú er ekki blöð- um um það að fletta, að hann er í valdsmannastétt, þegar bréfið til konungs var skrifað, og er ekki um aðra sýslu að ræða honum til handa en þá, sem nefnd var. Það er greinilega tekið fram í Árna sögu, að árin 1274 til 1276 hafi Þorvarður búið að Keldum á Rangárvöllum og haft „sýslu fyrir sunnan heiðar". Hlýtur hér að vera átt við Sunnlendingafjórðung eða að minnsta kosti Rangár- og Árnesþing. Er þannig getið bréfa, sem Þorvarður ritaði Magnúsi konungi árið 1276: „Á þessu sumri, er séra Aðal- brandur kom út meo konungsboðskap, komu fyrir Magnús kon- ung bréf Þorvarðs Þórarinssonar. Var í þeim borið vitni, að Sunn- lendingar létu sér bezt fara til hans og þá framast Sighvatur Hálfdanarson".6) Ef Þorvarður hefði eigi meira haft af Sunnlend- ingafjórðungi til yfirráða en Rangárþing eitt, myndi hér eigi vera talað um Sunnlendinga heldur Rangæinga. Og það atriði, að Sighvatur er nafngreindur sérstaklega, sýnir, að þá er hann umboðsmaður Þorvarðs, en vissulega ekki í Rangárþingi, heldur 1 „sýslu fyrir utan Þjórsá", enda búsettur þar. Þrátt fyrir vitnisburð þann, sem Þorvarður gaf umboðsmanni sinunr og öðrum Sunnlendingum um hollustu, hefir konungur tekið af þeim Sighvati „sýslu fyrir utan Þjórsá“ og fengið Hrafni Oddssyni hana. Árið 1277 er Ásgrímur Þorsteinsson orðinn þar sýslumaður „með herra Hrafni". Skipar Ásgrímur nú þann vlrð- mgarsess, sem fyrirrennari hans Sighvatur Hálfdanarson hafði haft, þá er höfðingjamir sex sendu Magnúsi konungi bréfið, það er finunta sætið. En þá var Ásgrímur hinn þriðji í röðinni og talinn upp á undan lögmanninum. Um leið og hann flyzt niður Um tvö þrep, lítur metorðastiginn þannig út: Hrafn, Þorvarður, Sturla, Sighvatur, Ásgrímur, Erlendur. Og þannig hefir hann verið í lyrstu eftir að Ásgrímur tók við sýsluvöldum af Sighvati. Þetta má glöggt siá, begar höfðingiaröðin er borin saman við goðatalið í'ölkofra þætti E Hrafn—Snorri. Þeim láðist að hefna föður síns. 2. Þorvarður—Guðmundur. Þeir eru bornir kynvillubrigzlum.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.