Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1951, Side 58

Andvari - 01.01.1951, Side 58
54 Barði Guðmundsson ANDVARI skuldunautum. Þessi maður hafði verið ágangsmaður við bænd- ur, og voru víðast sakir til fundnar, svo nokkru löglegar sem verða mátti. Biskup setti hann niður á kirkjueign í Efstadal, og lét hann þar flytjast með hyski sitt. En þeir, er síns misstu við Ketil, tóku þá að heimtá á hann skuldir, og með þeim Þorvarður bóndi. Biskup tók því máli fyrir Ketil og kvað hann engar skuldir lúka skyldi af heilagra manna fé. Þorvarði líkaði þetta stórilla og lét þó fyrir farast að leggja hendur á Ketil, né á fé það, sem hann fór með, og kallaðist þó lögum ræntur af þeim biskupi og Katli. Margir bændur lögðu og mál sín undir biskup. Líkaði það Þor- varði þungt“.10) Fjárheimtumálið á hendur Katli í Efstadal var ekki úr sög- unni, þótt Þorvarður rnissti sýslu sína „fyrir utan Þjórsá". Hinn nýi valdsmaður þar, Ásgrímur Þorsteinsson, tók það upp, enda var um þessar mundir stranglega bannað, að slílcum málum væri skotið til biskups dóms. „Árni biskup hafði, sem fyrr segir, tekið Ketil Ketilsson og skipt fé hans, og lauk engum meira, þá er öllu var upp skipt, en hinn fjórða hlut innstæðu. Biskup beiddi uppgjafar um allt þetta eður fjórðungstöku. Gerðu menn það margir fyrir hans sakir, sumir gáfu allt upp, en tóku ekki. Sumir gáfu ekki upp, og vildu eigi taka utan fullt, en þess var engi kostur. Guðröður hét bóndi, sá er bjó niður í Flóa, er hafnaði sínum hluta þann tima, er Þorvarður hafði sýslu. Hann sótti nú Ásgrím að þessu máli, en hann heimti að Katli þessa skuld og aðrar fleiri. Ketill kvaðst eigi greiða fé það, er stóð með kirkju- marki í Efstadal, og sagði stað og biskup eiga allt það, er hann fór með, og þar kom, að biskup tók Ketil og lið hans heim til staðarins, því að hann þóttist þar frjálslegar mega halda hann. En Ásgrími líkaði stórlega illa".11) Skuldheimtan á Ketil Ketilsson hófst, er Þorvarður sat að Keldum. Fljótt á litið hefði því mátt vænta, að Sighvatur Hálf- danarson umboðsmaður hans í „sýslu fyrir utan Þjórsá“ kænu hér við sögu. Engan þarf þó þetta að villa, e.f vel er að gáð. í Áma sögu er sagt frá búsetuskiptum Sighvats, er hann fluttist

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.