Andvari - 01.01.1951, Síða 63
andvari
Gervinöfn í Ölkofra þætti
59
Enga skarpskyggni þarf til þess að sjá, hver verið hafi „héruð“
og „ríki“ Sturlu Þórðarsonar á árunum 1255 til 1257. Það eru
að sjálfsögðu sveitimar umhverfis höfuðból hans Staðarhól i Saur-
bæ og Hítardal. Hefir Sturla eigi aðeins náð tökurn á stað í
Hítardal, heldur einnig á Hítdælagoðorðinu. Er því ofur eðlilegt,
að höfðingi Hítdælaættar, Ketill prestur Þorláksson, væri ekki
kjörinn til gerðar í valdastreitumáli Hrafns og Sturlu. Þar hefir
hann verið aðildarmaður. Að vísu mátti Ketill sjálfur ekki fara
með ættargoðorðið, þar sem hann var prestur, en þegar gerðar-
mennirnir í Bjamardal dæmdu Sturlu þau goðorð, sem hann hafði
þá á sinni hendi, voru báðir synir Ketils prests fulltíða menn
og annar þeirra hérlendis. Var það Ketill sá, sem Árni biskup
setti niður í Efstadal tveimur áratugum síðar.
Jafnframt gjaldþrotamáli Ketils í Efstadal hefir höfundur
Olkofra þáttar haft Bjamardalsgerðina mjög í huga, er hann
undirbjó ritsmíð sína. Ummerki þess á þættinum eru bæði mörg
°g mikilvæg. Lítum fyrst á nöfn gerðarmannanna og berum þau
saman við heiti höfðingjanna sex, sem sendu Magnúsi konungi
brefið 1275, svo og gervinöfn þeirra í þættinum. Ef nöfnunum
í hverjum flokki er raðað eftir stafafjölda þeirra verður saman-
hurðarskráin þannig:
Höfðingjanöfnin:
Hrafn
Sturla
Ásgrímr
Erlendr
Sighvatr (Sigvatr)
Þorvarðr
Gervinöfnin:
Snorri (Snori)
Skafti
Eyjólfr
Þorkell
Þorkell
Guðmundr
Gerðarmannanöfnin
Páll
Snorri
Snorri
Þorkell
Guðmundr
Þórarinn
Um leið og litið er á þessar þrjár nafnaraðir, sést, að höfð-
lngjamir sex frá Jámsíðutímabilinu eiga engan nafna hvorki í
annarri né þriðju röð. Á hinn bóginn eiga gerðarmennirnir sex
J ra nalna í goðaröðinni. Þetta furðulega fyrirhæri verður varla