Andvari - 01.01.1951, Page 91
andvari
Mannrétindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna
87
sem menn fái notið máltrelsis, trúfrelsis og öryggis um einkalíf
og afkomu.
Mannréttindi á að vemda með lögum. Að öðrum kosti hljóta
menn að grípa til þess örþrifaráðs að rísa upp gegn kúgun og
ofbeldi.
Það er mikilsvert að efla vinsamleg samskipti þjóða í milli.
í stofnskrá sinni hafa Sameinuðu þjóðirnar lýst yfir trú sinni
á grundvallaratriði mannréttinda, á göfgi og gildi mannsins
og jafnrétti karla og kvenna, enda munu þær beita sér fyrir
félagslegum framförum og betri lífsafkomu með auknu frelsi
manna.
Aðildarríkin hafa bundizt samtökum urn að efla almenna
virðingu og gæzlu hinna mikilsverðustu mannréttinda í samráði
við Sameinuðu þjóðimar.
Til þess að slík samtök megi sem bezt takast, er það ákaf-
lega mikilvægt, að almennur skilningur sé vakinn á eðli slíkra
réttinda og frjálsræðis.
Fyrir því hefur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fallizt á
mannréttindayfirlýsingu þá, sem hér með er birt til fyrirmyndar
öllum þjóðum og ríkjum. Skulu einstaklingar og yfirvöld jafnan
hafa yfirlýsingu þessa í huga og kappkosta með fræðslu og
uppeldi að efla virðingu fyrir réttindum þeim og frjálsræði, sem
hér er að stefnt. Ber og hverjum einum að stuðla að þeim fram-
förum, innan ríkis og ríkja í milli, er að markmiðum yfirlysing-
arinnar stefna, tryggja almenna og virka viðurkenningu á grund-
vallaratriðum hennar og sjá um, að þau verði í heiðri höfð, bæði
meðal þjóða aðildarríkjanna sjálfra og meðal þjóða á landsvæð-
um þeim, er hlíta lögsögu aðildarríkja.
1. grein.
Flver maður er borinn frjáls og jafn öðrum að virðingu og
rettindum. Menn eru gæddir vitsmunum og samvizku, og ber
þeim að breyta bróðurlega hverjum við annan.