Menntamál - 01.10.1950, Page 12

Menntamál - 01.10.1950, Page 12
154 MENNTAMÁL verður ekki hóti réttari fyrir þá sök, að hann hefur verið lögboðinn. Málið, og jafnframt breytingar á því, er samkomulagsatriði milli þegnanna. Til þess að lagaboð um breytingar á því hafi rétt á sér, þarf lagaboðið því að eiga rætur í sterku aimenningsáliti. Mér er ekki kunn- ugt um, að slíkt almenningsálit sé til í landinu. Ég hef ekki orðið annars var hér á Norðurlandi en fólk teldi að- eins norðlenzkan framburð eiga rétt á sér, en öfugt sjón- armið hefur mér virzt ríkja annars staðar. Eðlilegt er, að mönnum verði ljós þörfin á samræmdum framburði og sérstöku ríkismáli yfirleitt í löndum, þar sem mállýzku- munur er svo mikill, að fólk úr mismunandi landshlutum getur ekki skilið hvert annað eða á að minnsta kosti erfitt um það. En þá hefur yfirleitt ekki verið gripið til þess að taka sitt lítið úr hverri mállýsku, heldur hefur ein mállýzkan verið lögð til grundvallar. Ég hef gerzt hér svo langorður um þetta atriði, af því að ég get hugsað mér, að það verði til umræðu á næstunni, þegar stafsetn- ingarmálin verða athuguð í heild, en varla verður þess langt að bíða, að svo verði. 1 sambandi við þetta langar mig til að ræða annað mál, þó að það komi ekki beinlínis við aðalefni fyrirlestrar- ins. Ég hef orðið þess allmikið var, að ýmsum kennurum finnst stafsetningin ekki nógu mikið samræmd, þ. e. að innan núgildandi stafsetningar megi réttlæta mismunandi rithátt á sama orði. Einnig heyrast raddir um það, að löggilda ætti sérstakar orðmyndir, ef tvær eru til, t. d. hef og hefi. Ég er algerlega andvígur slíkum löggildingar- sjónarmiðum. Eins og stafsetningin er nú úr garði gerð, þ. e. meðan upprunasjónarmið ræður jafnmiklu og það gerir nú, hljóta alltaf að koma fram mismunandi skoðanir um rithátt einstakra orða. Fræðin um uppruna orðanna er og verður alltaf óörugg fræðigrein. Hún leitar, eins og aðrar greinir vísindanna, sannleikans, en fræðimenn geta í þeirri grein sem öðrum haft mismunandi hugmynd-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.