Menntamál - 01.12.1955, Page 16
198
MENNTAMÁL
SIGURÐUR JÓELSSON:
Félagstengsl í barnaskólum.
I 1. hefti Menntamála þ.
á. var spurningunni „Hvað
er sociometri?" svarað í
stuttu máli. I þessu hefti
gerir Sigurður Jóelsson
nokkra grein fyrir tengsla-
könnun, sem hann hefur
gert í nokkrum bekkjum í
skólum í Reykjavík.
Tengslapróf (sociometr-
iskt test) er kjarni hverrar
tengslakönnunar. Hér fer
á eftir stutt greinargerð
um tengslapróf, og er hún
tekin eftir kveri Vincent
Sterners „Elementár Soci-
ometri.“ Stockholm, 1953.
„Tengslapróf er í því
fólgið, að einhver kýs sér félaga eða samverkamann. Sú
félagslega aðstaða, sem á að skapast við þetta kjör eða
val, þarf að vera skynsamleg og eftirsóknarverð. Skóla-
börn geta valið félaga til leiks eða starfs, sætisfélaga í
matsal o. s. frv. Hér er gert ráð fyrir því, að flokkur manna
sé virkur og starfi í hlutfalli eða samræmi við það, hversu
sjálfkrafa félagarnir viðurkenna hverir aðra. Með hlið-
sjón af uppeldi má orða þetta á þann veg, að hinir ólíku
einstaklingar í hópnum séu búnir sæmilegum þroskaskil-
yrðum, þegar þeir viðurkenna hverir aðra sjálfkrafa.
Er gera skal tengslapróf í bekk, verður að byrja á því