Menntamál - 01.12.1955, Blaðsíða 90
272
MENNTAMÁL
9. Þingið beinir til menntamálaráðherra eindreginni ósk um það,
að hann beiti sér fyrir því, að kennarar, sem lokið hafa kennaraprófi
við kennaraskóla íslands öðlist ótvíræðan rétt til að stunda fram-
haldsnám í B.A.-deild Háskóla íslands og ljúka þaðan prófi.
ÁÐÁLFUNDUR KENNÁRÁFÉLÁGS EYJÁFJÁRÐÁR.
Aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar var haldinn í barnaskólan-
um á Akureyri laugardaginn 24. sept. s.l. Fundinn sóttu 40 kennarar af
félagssvæðinu.
Formaður félagsins, Hannes J. Magnússon, setti fundinn og bauð
fundarmenn velkomna. Gaf hann skýrslu um starf stjórnarinnar á
árinu. Þá var og gefin skýrsla um tímarit félgasins, „Heimili og skóli",
sem það hefur gefið út síðastliðin 14 ár. Fundarstjórar voru Guðmund-
ur Frímannsson og Hjörtur L. Jónsson.
Á fundinum flutti Stefán Jónsson námsstjóri erindi um ýmislegt í
skólastarfi, Snorri Sigfússon flutti erindi um sparifjárstarfsemi í
skólum og Magnús Pétursson flutti erindi frá ferðalagi um Vestur-
heim. Rætt var um ríkisútgáfu námsbóka og prófin og verkefnin,
og urðu um jtað allmiklar umræður. í stjórn voru kosnir: Hannes J.
Magnússon, formaður, Eiríkur Sigurðsson, ritari, og Páll Gunnarsson,
gjaldkeri.
Eftirfarandi ályktanir voru samþykktar á fundinum:
1. Aðaifundur Kennarafélags Eyjafjarðar telur, að Ríkisútgáfa
námsbóka hafi bætt úr mikilli og brýnni þörf á sínum tíma. En þó
hafa síðar komið fram á henni ýmsir þeir annmarkar, sem vart má
við una, Sá er verstur, að skipulag hennar ásamt fjárskorti virðist ekki
leyfa lienni að jtróast eðlilega. Nauðsyn má einnig telja, að stjórn
námsbókaútgáfunnar sé skipuð mönnum, sem staðgóða þekkingu hafa
á starfi barnaskólanna.
Því skorar fundurinn á menntamálaráðherra að skipa þriggja
manna nefnd barnakennara til að endurskoða þessa löggjöf og fram-
kvæmd hennar.
Vill fundurinn benda á J>á höfuðnauðsyn, að endurnýja náms
bækurnar stöðugt eftir kröfum tímans og breyttum kennsluháttum,
svo og í samræmi við gildandi námsskrár. En jafnframt vill hann
benda á, að tæplega er þess að vænta, að verulegar góðar námsbækur
komi á markað nema allt kapp sé lagt á að fá hina færustu menn til
að semja þær og greitt sé vel fyrir góð handrit. Hugsanleg leið væri að
efna þarna til samkeppni. í þessu sambandi má benda á, að óhjá-