Menntamál - 01.12.1955, Blaðsíða 65
MENNTAMÁL
247
að vikið. Framhaldsnám margra fræðigreina er því
ómögulegt þeim, sem enga erlenda tungu skilja. Þess
vegna er full ástæða til að athuga gaumgæfilega, hvort
ekki sé rétt að taka upp kennslu eins erlends máls í
barnaskólum, jafnvel við 10 ára aldur. Erlenda málið
yrði auðvitað að telja til höfuðgreina, því að það er náms-
tæki. Það yrði því prófgrein, en aðeins skilningur á því
yrði prófaður, önnur kunnátta ekki.
G. Ó. G.
NÁMS- OG UTANFARARSJÓÐUR.
A síðastliðnum vetri stofnuðu kennarar við Barnaskóla Akureyr-
ar sjóð, er nefnist Nánts- og utanfararsjóður kennara við barnaskóla
Akureyrar.
I 2. grein reglugerðar fyrir sjóðinn segir svo:
Tilgangur sjóðsins er að styrkja kennara við barnaskóla á Akur-
eyri til námsferða og dvalar við erlenda skóla. Ef uppeldis- og kennslu-
fræðideild verður stofnuð við Háskóla íslands, getur einnig komið
t'l mála, að sjóðurinn styrki kennara til náms þar.
1 4. grein segir svo m. a.: Ætlazt er til, að höfuðtekjur sjóðsins
fyrst um sinn fáist með þeini hætti, að liver fastur kennari við
barnaskóla bæjarins greiði árlega 100 kr. tillag í sjóðinn---Þá
skal og reyna að efla sjóðinn á ýmsan annan hátt, svo sem með gjöf-
um, áheitum o. fl.
I 6. grein segir ennfremur svo m. a.: Veita má einum kennara styrk
úr sjóðnum árlega, ef um það berast umsóknir. Þó er heimilt að
veita fleiri kennurum styrk, ef fé er fyrir hendi. En sæki fleiri um
styrk úr sjóðnum en hægt er að fullnægja, skal almennur kennara-
fundur skera úr því með leynilegri atkvæðagreiðslu, hver styrkinn
á að liljóta.
Þá eru ákvæði um, að aldrei ntegi veita meira fé úr sjóðnum en
sem svarar */5 af árstekjum hans.
Rétt til styrks hafa allir fastir kennarar við barnaskólana, hafi
þeir greitt tilskilið gjald í 3 ár.
Stjórn sjóðsins er ski|>uð 3 mönnum, og voru þessir kennarar
kosnir í stjórnina: Eiríkur Stefánsson formaður, Ásgeir Pálsson rit-
ari og Júdit Jónbjörnsdóttir gjaldkeri.