Skírnir - 01.01.1917, Blaðsíða 27
20
Tjm launa- og eftirlaunatill. launanefndarinnar. [Skirnir
auk þess laun nokkurra læknisembætta úr 1500 kr. niður
í 1200 kr. Að öðru leyti fellir nefndin byrjunarlaun em-
bættismanna yfirleitt svo langt niður úr því, sem föstu launin
eru nu7 að vanséð er, að sumir embættismenn komist fyrir
hor á hærri stigin, og víst er um það, að þeir yrði margir
að þræla mörg ár á lægri launum til þess að ná svo-
kölluðum meðallaunum nefndarinnar, sem yfirleitt eru rétt
í kringum föstu launin nú og jafnvel undir þeim. Eg læt
mér nægja að geta sem sýnishorna meðferðar nefndar-
innar á þessu í raun og veru holla hækkunarlögmáli
gagnvart dósentum, adjunktum og simastöðvarstjóranum í
Reykjavík. Dósentar hafa nú 2800 kr. og eru eftirlauna-
lausir. Adjunktarnir hafa nú tveir 3200 kr., tveir 2800
kr. og einn 2400 kr. og landssjóður eftirlaunar þá og
ekkjur þeirra. Reykjavíkurstöðvarstjórinn hefir nú 2600 kr.
og er eftirlaunalaus. Nefndin leggur öllum þessum mönn-
um þá skyldu á herðar að eftirlauna sig og ekkjur sínar
af eigin fé, og gerir ekkert fyrir verðfalli peninga, en
setur þó byrjunarlaun dósentanna 2600 kr. eða 200 kr
neðar en nú, og ætlar þeim að dúsa við þessi kjör óbreytt
í 5 ár; hún setur byrjunarlaun adjunktanna 2200 kr. og
lækkár launin þannig yfirleitt um 1000 kr. eða 600 kr. og
-áetlar þeim, öðrum en núverandi adjunktum, að lifa við
þau í 3 ár. Byrjunarlaun stöðvarstjórans setur hún 2000
kr. eða 600 kr. neðar en nú og ætlar honum að sitja við
þau í 3 ár, og hæstu laununum, 3000 kr., eða 400 kr. brúttó-
launabót frá því sem nú er, nær stöðvarstjórinn eftir 15
ár, ef að »batteríið« í honum verður þá ekki þornað áður.
Nefndin lofaði, að takatil greina undirbúnings-
kostnað embættismannsins ánámsárunum. En gleymir því.
Hún lofaði að bæta embættismanninum það upp í laun-
um hans, sem nemur á r g j a 1 d i hans fyrir eigin 1 í f e y r i
óg fyrir eftirlaun ekkju hans til handa. En gleymir því.
Hún lofaði að bæta mönnum upp í laununum þá
ábyrgð og vanda, sem hún telur fylgja sumum em-
bættum, en gleymir bæði að gera grein fyrir, hver þau
-embætti eru og hve miklu slík uppbót á að nema.