Skírnir - 01.01.1917, Page 48
Skirnir]
Nýtizkuborgir.
4H
hjá fólkinu i þessum brunni, sem ekki sér sóiina' í lier-
bergjum sínum. — Og hvar eiga börnin að hafast við og
leika sér? Þau hafa auðvitað um ekkert annað að gera
en þennan iitla húsagarð, sem enginn gróður er í og aldrei
sést sól í, því ekki er það börnum hent, að hætta sér út:
í götumúginn og alla umferðina.
Verðhaekkun En hvcrnig gat mönnum komið til hugarr
landsins. að byggja húsin svona hvert hjá öðru svo
hvert byrgði fyrir annað, og því voru þau
bygð svo geysihá, hvert gólfið ofan á öðru? Mörg óþæg-
indi liljóta þó að fylgja því, að hrúga slíkum mannfjölda
saman á svo lítið svæði. — Það væri langt mál ef rækÞ
lega skyldi leysa úr þeirri spurningu, en skiljanlegt er
það þó, er þess er gætt, að hér erum vér staddir i verzl-
unargötu í ipiðjum bæ og að hver ferstika af hússtæðinu
kostar svo hundruðum króna skiftir. Bletturinn sem hús-
ið er bygt á hefir sennilega kostað stórfé. — Það gætí
ekki borið sig, að byggja lítið hús á honum, en með þessu
geysilega þéttbýli og háu leigunni fyrir hvern kyma, get-
ur byggingin orðið mjög arðsamt fyrirtæki, þó dýrt sé
hússtæðið. Eflaust á einhver auðmaður húsið og hefir séð
um það, að haga svo byggingunni, að hann fengi rífiega
vexti af fé sínu.
En hvernig kemst þá landið í þetta geysiverð? Það-
sýnist þó engri átt ná, að borga svo hundruðum króna
skiftir fyrir eina ferstiku. Ekki gæti það verið umtals-
mál, að rækta neitt á landinu, sem gæfi svo mikið i aðra
hönd, að svaraði til þessa verðs. Til þessa liggja einkum
tvær orsakir: IIin fyrri er sú, að húsið er á almanna-
færi og fyrir kaupmennina, sem verzla í búðunum, borgar
það sig, að gjalda svo þúsundum króna skiftir í húsa-
leigu á ári fyrir dálitla búð, þvi verzlunin er þeim mun
meiri hér cn annarstaðar, þar sem fáferðugra er. Hin.
síðari er sú, að byggingarsamþykt bæjarins hefir leyft að
bygf?ja marglyft hús og mcð örliilmn millibilum. Ef þetta
hetði ekki verið leyft, þá licfði l.mdið aldrei getað hækk-