Skírnir - 01.01.1917, Blaðsíða 51
44
Nýtízkuborgir.
[Skirnir
það ekki, að svo mikið er bygt á liverju luisstæði, sem
lög frekast leyfa, og svo mörgu fólki troðið í hvert hús,
að undrum sætir. Hér er borga þétt- og þröngbýlið í al-
mætti sínu. Inni í húsunum eru híbýlaþrengslin svo mikilr
að. flestar fjölskyldur hafa aðeins eitt herbergi og eldhús
til allra þarfa. Ekki allfáar verða að komast af með eitt
herbergi eldhúslaust, og sumar jafnvel með einhverja her-
bergisnefnu, sem engin eldfæri fylgja.1) Það má geta nærri
hve erfitt er að liafa slík húsakynni þrifaleg og lieimilis-
leg, þegar ekki er öðru til að tjalda til allra þarfa en einu
herbergi og eldhúsi, ef þá ekld er eldað og þveginn þvott-
ur i sama herberginu og sofið er i. Og það er ekki nóg
með þetta. Algengt er það, sérstaklega í þýzku borgun-
um, að einn eða fieiri menn koma að kvöldinu, og fá að
vera um nóttina gegn lítilfjörlegri þóknun. Annað hús-
næði hafa þeir ekki. Og skemtilegt er það ekki lífið i
þessum sólarlausu, þröngu híbýlum. Konan vinnur sjálf
öll verkin að deginum og annast börnin, maðurinn vinn-
ur í einhverri verksmiðju, og þegar hann kemur heim að
kvöldinu, er þar allajafna kalt og óvistlegt. Hann kemst
þá fljótlega upp á það, að leita út á veitingahúsin í ná-
grenninu og situr þar með félögum sinum þangað til hátta-
tími er kominn. Hann fer þá heim meira eða minna
ölvaður og hefir eytt ríflegum hluta af dagkaupinu, en
heima sitja kona og börn, oft og einatt köld, klæðlítil og
svöng.
Afleiðing- Þannig var þá skrautlega, mikilfenglega borgin
arnar. er betur var gáð að, — lakari að mörgu leyti
en lélegur sveitabær. Ef þetta ætti við lítinn
hluta borgarbúa, fátækasta rilinn, væri ekki um eins mik-
ið að tala, en nú er það helmingur bæjarbúa, scm lifir
þessu lífi eða litlu betra og þá er fljótséð, að hér er um
alvarlegan hlut að ræða. Það fer að líkum, að það liafi
J) Árið 1900 liafði nálega helmingur allra fjölskyldna í öllum prúss-
nesku bæjunum ekki önnur húsakynni en 1 herbergi og eldhús eða
minna. Conrad Handw. v. Staatsw. „Wohnungsfrage11.