Skírnir - 01.04.1920, Síða 38
116
Ráðningastofur.
[Skírnir
þá menn, er leita hennar, ef þess væri þörf. Til slíks
mundu hreppstjórar eða hreppsnefndaroddvitar vel fallnir,
en oft mundi verða að velja fulltrúa með hliðsjón af því,
hve auðvelt væri að fá símasamband við hann, því að
bréfaskríftir yrðu að jafnaði of seinfærar í þessum efnum.
Eitt hið helzta lifsskilyrði slíkrar ráðningastofu væri
nú það, að þeir sem til hennar leituðu yrðu yfirleitt
ánægðir með árangurinn, en það verða menn því að eins,
að þeir fái fólk eða vist greiðlegar og ódýrar með þess-
um hætti en öðrum, og að hvorttveggja reynist sem líkast
því sem gert var ráð fyrir, þegar samningar tókust, eða
enn betur. Það er mjög eðlilegt, að hver kjósi helzt að
þekkja sjálfur þann er hann ræður til sín eða ræðst til,
og þegar þess er ekki kostur, að hann þá reyni að afla
sér beztu vitneskju sem fáanleg er hjá öðrum. Öllum er
óljúft að kaupa köttinn í sekknum. Ráðningastofurnar
yrðu því að hafa sem bezt skilríki, bæði um þá menn og
þær vistir sem í boði væru.
Það er nú ekkert nýmæli, að þeir sem ráða sér
starfsfólk, heimti af þeim, er starfa vilja fá, nákvæma
skýrslu um allan hag þeirra, að minsta kosti tíðkast það
mjög í öðrum löndum uin ýmsar verzlanir. Sem dæm1
þess skal eg nefna fyrirmyndarverzlun eina i Bostoa,
Wm Filene’s Sons Company, er eg kyntist á vesturför
minni. Hver sem sækir þar um starf, fær í hendur eyðu-
blað, sem hann á að fylla. Þar eru spurningar um nafa
hans, heimilisfang, símanúmer, starfið sem hann sækir um,
þjóðerni, trúarbrögð, hvort hann er kvongaður, ókvong-
aður eða fráskilinn, hve gamall, hve marga hann fram-
færir að öllu leyti og að nokkru leyti og hve skyldá'
þeir eru honum, hvort hann eða nokkurt skyldmenni
hans hafi eða hafi haft tæringu, hvort hann hafi nokkra
líkamsgalla, hvort hann sé heilbrigður nú, hvaða próf
hann hafi tekið, hvort hann hafi þá fengið laun sín
goldin eða eigi þau inni, hvort hann hafi áður starfað við
þessa verzlun, ef hann vilji fást við sölu, um hvaða sölu
hann hafi þá mesta reynslu. Auk þess á umsækjandi að